Þarf á óreiðunni að halda

Eva Rún Snorra­dóttir segir frá til­urð bók­ar­innar Óskila­munir, sem fjallar um alls konar skiln­aði og inni­heldur smá­sögur, ljóð og ljós­myndir.

Þarf á óreiðunni að halda
Bók

Óskila­munir

Höfundur Eva Rún Snorradóttir
Benedikt bókaútgáfa
160 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Bókin Óskila­munir eru stuttar sögur, og inn á milli ljóð og ljós­myndir sem eru sjálf­stæðar en kall­ast á og tengj­ast með nokkrum þráðum,“ segir rit­höf­und­ur­inn Eva Rún Snorra­dóttir. Bókin fjallar um kross­götur, skiln­aði, á ýmsum skeiðum í líf­inu og ýmsum birt­ing­ar­myndum. „Skilnaði elsk­huga, skiln­aði vina, þegar maður þarf að skilja við eitt­hvað í sjálfum sér. Svo fjallar hún líka um sárs­auka, hvernig hann mótar okkur og hvernig hann vinnur og við með hann. Hún fjallar líka um ákveð­inn per­formans í líf­inu, það er mikið fjallað um sviðs­lista­fólk og alls konar sviðs­listir og hvernig lífið er eitt alls­herjar grímu­ball. Svona verið að reyna að rekja það upp.“

Hún byrj­aði að skrifa nokkrar sögur sem spruttu frá ein­hverju sem hún var að ganga í gegnum og upp­lifa. „Svo mót­aði ég það með aðferðum skáld­skap­ar­ins. Og svo bara hélt ég áfram og það opn­að­ist ein­hver taug. Það spruttu út þessar sögur og svo hef ég bara verið að elta það. Hún bara varð til í þeirri vinnu.“

Gott og fallegt að gefa út bók 

Ólíkt mörgum öðrum þá unir hún sér illa við skriftir í algjörri ró, hún þarf á óreið­unni að halda. „Það tók mig tíma að fatta að ég þarf óreiðu, dýnamík til þess að skrifa. Þegar ég kem úr sviðs­list­inni og hef unnið í sam­sköpun þar sem við erum nokkur að kasta boltum og það verður ein­hver dýnamík. Ég er búin að vera und­an­farin ár að þróa þá dýnamík ein, að búa til ein­hverja óreiðu með litlum miðum. Þannig að ég mæti á dag­inn og bý til rosa mikla óreiðu með miðum og listum og stundum hlutum. Og þá get ég byrjað að skrifa.“ 

Það er góð til­finn­ing að gefa út bók. „Mér líður vel með að bókin sé komin út. Mjög vel. Ég er mjög ánægð með hana, mér finnst gott að taka utan um þennan við­burð að gefa út bók. Þetta er stórt. Mér finnst það bara gott og fal­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár