612. spurningaþraut: Umdeildasta lag Bjarkar?

612. spurningaþraut: Umdeildasta lag Bjarkar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Frú Hudson heitir kona ein sem leigir út hús­næði í London. Fornafn hennar er aldrei nefnt. Einn af leigj­endum hennar er fræg­ari en nokkur hinna, mér liggur við að segja að hann sé heims­frægur. Eða var rétt­ara sagt. Eða er, því hann er í vissum skiln­ingi eilífur. Hvað heitir þessi leigj­andi frú Hudson?

2.  Hvaða íslenski höf­undur skrif­aði meðal ann­ars leik­ritin Skáld-Rósa og Dagur vonar?

3.  Í hvaða hljóm­sveit spil­aði Bill Wyman á bassa lengst af?

4.  Hvers konar fyr­ir­bæri eru tví­höfði og þrí­höfði í manns­lík­am­anum?

5.  Hvað eru „inn­rétt­ing­arnar“ í íslenskri sögu?

6.  Hvað heitir síð­asta stóra plata Bjarkar, sem út kom 2017?

7.  Fræg bók með sama nafni hafði komið út 1516. Hver skrif­aði þá bók?

8.  Eitt lag Bjarkar hefur orðið umdeild­ara en nokk­urt annað, og rík­is­stjórnir í sumum löndum hafa meira að segja amast við því. Hvað heitir það lag? 

9.  Hvað gerði Þorlákur sá sem Þor­láks­messa er kennd við? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

10.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Damaskus?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er bíll­inn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sherlock Holmes.

2.  Birgir Sig­urðs­son.

3.  Rolling Stones.

4.  Vöðvar.

5.  Iðn­fyr­ir­tæki í Reykja­vík.

6.  Utopia.

7.  More.

8.  Declare Independence.

Ýtið á mynd­ina, þá ferð­ist sjálf­krafa á Youbube og sjáið lagið

9.  Biskup í Skál­holti.

10.  Sýrlandi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið hið efra er úr kvik­mynd­inni Matrix eins og ljóst má vera.

Bíll á neðri mynd­inni er Citroën.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár