598. spurningaþraut: Í fyrsta sinn (held ég) er lárviðarstig fyrir aukaspurningu!

598. spurningaþraut: Í fyrsta sinn (held ég) er lárviðarstig fyrir aukaspurningu!

Fyrri auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða lands má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fræðibók ein eftir Berg­svein Birg­is­son komst í sviðs­ljósið um dag­inn. Hvað heitir bókin — nákvæm­lega?

2.  Í hvaða ríki er fyrst minnst á núðlur? Þetta var skömmu eftir Krists burð.

3.  Hverrar þjóðar var Eva Braun?

4.  Í hvaða borg er helsta minn­is­merkið um Lincoln í Banda­ríkj­unum?

5.  Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir heitir nýr þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður. Henni hefur auð­vitað ekki unn­ist mik­ill tími til að láta að sér kveða, en komst þó í frétt­irnar um dag­inn. Vegna hvers?

6.  Bróðir Arndísar Önnu lét af þing­mennsku um leið og hún sett­ist á þing. Hver er það?

7.  Og fyrir hvaða flokk sátu og sitja þau systk­inin bæði á þingi?

8.  Fræg skáld­saga eftir kól­umbískan höf­und heitir Hundrað ára ... hvað?

9.  Hvað er amaba?

10.  Róm­verskur keis­ari fædd­ist á þessum degi fyrir 1.984 árum. Hann svipti sig að lokum lífi þegar óvinir sóttu að honum, og mun þá hafa sagt: „Æ, hví­líkur lista­maður deyr nú með mér!“ Hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða landi ríkti þjóð­ar­leið­tog­inn hér að neðan? Tekið skal fram að þetta er erfið spurn­ing og sárafá ykkar munu í raun þekkja mann­inn í sjón. Þokka­lega glúrin ágiskun í bland við rann­sókn á mynd­inni gæti þó skilað réttu svari. Og það er lár­við­ar­stig í boði fyrir að vita hvað karl­inn heitir!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Leitin að svarta vík­ingnum.

2.  Kína.

3.  Þýsk.

4.  Washington

5.  Hún fékk alltof löngu net­fangi úthlutað frá Alþingi.

6.  Helgi Hrafn.

7.  Pírata.

8.  Einsemd.

9.  Ein­frum­ungur, örvera, eitt­hvað þvíum­líkt er allt rétt.

10.  Neró.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru útlínur Indlands.

Á neðri mynd­inni er ein­ræð­is­herra Albaníu til margra ára, Enver Hoxha.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár