597. spurningaþraut: Græningjar, guðir og Grýla

597. spurningaþraut: Græningjar, guðir og Grýla

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist sú bjarn­ar­teg­und sem sjá má á mynd­inni hér að ofan — sú eina sem lifir í Suður-Ameríku?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Artemis hét gyðja ein. Goð­sagna­kerfi hvaða þjóðar til­heyrði hún?

2.  Hvað hét tví­bura­bróðir hennar?

3.  Árið 2014 hvarf far­þega­þota með fjölda far­þega og er hún talin hafa steypt í sjó­inn, lík­lega með vilja ein­hvers eða ein­hverra um borð. Allt þykir málið hið dul­ar­fyllsta. Flug­fé­lagið sem átti þot­una var í ... hvað landi?

4.  Hvað heitir barns­faðir Grýlu — eftir því sem best er vitað?

5.  Hvað heitir hinn nýi kansl­ari Þýska­lands?

6.  Hinn nýi kansl­ari reiðir sig meðal ann­ars á stuðn­ing Græn­ingja, sem hafa lengi verið öfl­ugir í Þýska­landi. Fyrsti flokk­ur­inn sem tal­inn er til Græn­ingja — þótt ekk­ert grænt sé í nafni hans — bauð fram í stóru landi alveg hinum megin á hnett­inum í kosn­ingum í apríl 1972. Í hvaða landi buðu Græn­ingjar fyrst fram sam­kvæmt því?

7.  Hvaða þétt­býl­is­staður er við Skjálf­anda?

8.  Þar við fló­ann sett­ist að fyrsti nafn­greindi land­náms­maður Íslands, þótt hann hafi af ein­hverjum ástæðum aldrei verið tal­inn land­náms­maður í sögu­bókum for­tíð­ar­innar. Hvað hét hann?

9.  Hver var for­seti Banda­ríkj­anna á eftir Franklin D. Roosevelt?

10.  Einn er staður á Íslandi sem mjög er óljóst eftir hverjum heitir. Þjóðsaga, sem lík­lega er ekki mjög gömul, hermir að Vest­firð­ingur einn hafi haldið til Noregs og þegar hann kom til baka steig hann á land á óbyggðum stað á Íslandi og bar far­angur og fjöl­skyldu í landi. En þá bjuggu reyndar á staðnum risar og bjarg­búar og stökkti Vest­firð­ing­ur­inn þeim sumum á brott en drap aðra, og hreins­aði svo stað­inn af ill­þýði þessu. Var stað­ur­inn svo nefndur eftir honum. Hvað hét stað­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver heitir bar­áttu­konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Grikkja.

2.  Appollo.

3.  Malasíu.

4.  Leppalúði.

5.  Scholz.

6.  Ástralíu.

7.  Húsavík.

8.  Náttfari.

9.  Truman.

10.  Grímsey.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er gler­augna­björn.

Á neðri mynd­inni er Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir. Í þessu til­felli dugar Tara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár