591. spurningaþraut: Fitusýrur, tartarsteik, Malacca-sund — verður á betra kosið?

591. spurningaþraut: Fitusýrur, tartarsteik, Malacca-sund — verður á betra kosið?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða söng­leik er myndin hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvernig er svo­nefnd tart­ar­steik elduð?

2.  Hvað nefn­ast fitu­sýr­urnar sem finn­ast í lýsi og taldar eru einkar heilsu­sam­legar? Svarið þarf að vera nákvæmt.

3.  Hvaða stór­borg er við suð­ur­mynni Malacca-sunds í Asíu? 

4.  Í hvaða landi er stór­borgin Sao Paulo?

5.  Í hvaða jökli leyn­ist eld­stöðin Katla?

6.  Ást­hildur Sturlu­dóttir er bæj­ar­stjóri ... hvar?

7.  Í hvaða landi eru Kia bílar upp­runnir?

8.  Alfred Wegener hét maður nokkur sem setti árið 1912 fram djarfa kenn­ingu í vís­indum, og var hún svo frum­leg að það leið nærri hálf öld þangað til hún varð við­tek­inn sann­leikur í vís­ind­unum. Hvaða kenn­ing var þetta?

9.  Við höf­uð­borg Súdan falla saman tvær stórar ár. Önnur kemur sunnan úr Mið-Afríku en hin úr fjöllum Eþíópíu. Saman mynda árnar hið mikla fljót Níl sem fellur loks til sjávar í Egifta­landi. Vestari áin (úr Mið-Afríku) heitir Hvíta Níl en hvað heitir sú eystri?

10.  Í Íslend­inga­sögu einni segir karl einn svo: „Satt eitt segið þið, og myndi aftur hafa horfið ef þið hefðuð hitt mig fyrr, en nú falla vötn öll til ...“ Ja, hvert féllu öll vötn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hún er borin fram hrá.

2.  Omega 3.

3.  Singapúr.

4.  Brasilíu.

5.  Mýr­dalsjökli.

6.  Akureyri.

7.  Suður-Kóreu.

8.  Land­reks­kenn­ingin.

9.  Bláa Níl.

10.  Dýra­fjarðar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr söng­leiknum My Fair Lady.

Neðri myndin er af fána Úkraínu.

Svo eru hér fyrir neðan hlekkir á fleiri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár