Tími margröddunar

Ljóða­safnið Pólífónía sýnir að bók­menntir nýrra Íslend­inga standa með miklum blóma. Skáldin Ana Mjall­hvít Dreka­dóttir, Jakub Stachowiak og Natasha Stolyarova segja að tími fjöl­breytn­innar sé runn­inn upp og skora á íslenska útgef­endur að svara kall­inu.

Tími margröddunar
Frá vinstri: Jakub Stachowiak, Natasha Stolyarova og Ana Mjall­hvít Dreka­dóttir. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við erum til og við erum mörg. Það er eft­ir­spurn eftir okkar skáld­skap og hér er svarið.“ Þannig segir í aðfara­orðum ljóða­bók­ar­innar Pólífóníu sem kom út hjá Unu útgáfu­húsi á degi íslenskrar tungu í síð­ustu viku. Bókin hefur að geyma skáld­skap nýrra Íslend­inga og er í for­mála kölluð „eins konar fæð­ing inn­flytj­enda­bók­mennta á Íslandi“. Meðal höf­unda eru þau Ana Mjall­hvít Dreka­dóttir, Jakub Stachowiak og Natasha Stolyarova.

Það vantar svona bók á Íslandi

Natasha, sem einnig rit­stýrði bók­inni og skrif­aði for­mála, lýsir því hvernig ljóða­bók danska skálds­ins Yahya Hassan, YAHYA HASSAN, varð henni inn­blástur. Verk Hassan lýsti lífi og stöðu inn­flytj­enda í Danmörku á óvæg­inn og hisp­urs­lausan hátt og hafði mikil áhrif. „Ég hugs­aði: Það vantar svona bók á Íslandi,“ segir Natasha. „Það eru engar raddir með útlenskan bak­grunn í bók­menntum. Þetta er að breyt­ast núna. Mér fannst nauð­syn­legt að búa til svona bók og koma inn­flytj­enda­bók­menntum til Íslands. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár