589. spurningaþraut: Hér er spurt um söngvara, peysuföt, Hoyvik og fagran pilt

589. spurningaþraut: Hér er spurt um söngvara, peysuföt, Hoyvik og fagran pilt

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er karl­inn hér að ofan að syngja?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tiltekin þjóð eða þjóð­ern­is­hópur er sá fjöl­menn­asti í heimi og telur 1,4 millj­arða manna. 92 pró­sent Kínverja til­heyra þess­ari þjóð. Hvað nefn­ist hún?

2.  Delaware, Idaho, Jeffer­son, Minnesota, Nebraska, Wyoming. Fimm af þessum land­fræði­heitum merkja ríki í Banda­ríkj­unum, en eitt ekki. Hvað af þessum sex er ekki amer­ískt ríki?

3.  Hverjir eru eða voru Den­isovar?

4.  Í hvaða landi er hér­aðið Umbria?

5.  Hver setti Alþingi í upp­hlut í nóv­em­ber sem starfs­ald­urs­for­seti þings­ins? (Hér skrif­aði ég í fyrstu „peysu­föt“ en upp­hlutur var það, heillin!)

6.  Amelia Earhart var fræg kona á sinni tíð, og raunar enn. Hún hvarf árið 1937 og örlög hennar eru enn ókunn. Earhart var fræg fyrir að vera ...?

7.  Nafnið á hvaða íþrótt er dregið af hol­lensku orði sem merkir „kylfa“?

8.  Frá hvaða landi kemur fót­bolta­karl­inn Lionel Messi?

9.  Hoyvik er þriðji fjöl­menn­asti bær­inn á ákveðnu svæði, sem sé í ...?

10.  Í grísku goða­fræð­inni segir frá pilti einum sem var svo fagur að hann varð ást­fang­inn af sinni eigin speg­il­mynd. Eyddi hann svo ævinni við að horfa dol­fall­inn af hrifn­ingu á sjálfan sig. Hvað hét þessi sjálf­hverfi piltur?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá teikni­mynda­sögu­út­gáfu af frægu bók­mennta­verki, sem er ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Han.

2.  Jeffer­son.

3.  Útdauð mann­teg­und, sam­tíma­menn Neand­er­dals­manna.

4.  Ítalíu.

5.  Þor­gerður Katrín.

6.  Flug­maður.

7.  Golf.

8.  Argent­ínu.

9.  Færeyjum. Hoyvik mun raunar nú yfir­leitt talin hluti Þórs­hafnar.

10.  Nar­k­is­sos.

***

Svör við auk­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sá PSY syngja Gangnam Style. Sjá hér!

Neðri myndin sýnir útgáfu af Makbeð eftir Shakespe­are.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár