587. spurningaþraut: „Cogito, ergo sum.“

Fyrir auka­spurning:

Hver er þessi kvikmynda­stjarna?

***

Aðal­spurning:

1.  Fyrir nokkrum árum gaf Hall­grímur Helgason út skáld­söguna Sextíu kíló af sólskini. Nú sendir hann frá sér bókina Sextíu kíló af ... hverju?

2. Í hvaða landi er borgin Strasbourg?

3.  Hver sendi frá sér plötuna Thriller árið 1982?

4.  Fyrir hvaða flokk sat Björt Ólafs­dóttir á þingi fyrir nokkrum árum — og var umhverfis­ráðherra um hríð árið 2017?

5.  En fyrir hvaða flokk situr Inga Sæland nú á þingi?

6.  Hvaða ríki ræður Svalbarða?

7.  Í Gir-þjóð­garðinum á Indlandi búa nokkur hundruð dýr af ákveðinni tegund. Þau eru síðustu leifar þessarar dýra­tegundar sem einu sinni bjó um mestalla Asíu, en nú hvergi nema í Gir. Hvaða dýr eru þetta?

8.  Fyrir hvað er forn­konungsins Hammúrabís minnst?

9.  „Cogito, ergo sum.“ Hvað þýða þessi orð, sem eignuð eru franska heim­spekingnum Descartes — þótt ýmsir hafi haft orð á hugmyndinni áður?

10.  Í hvaða heimsálfu er landið Vanuatu?

***

Auka­spurning sú hin seinni:

Hver er karlinn á myndinni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Kjafts­höggum.

2.  Frakk­landi.

3.  Michael Jackson.

4.  Bjarta framtíð.

5.  Flokk fólksins.

6.  Noregur.

7.  Ljón.

8.  Fyrir lögbók sem hann lét gera.

9.  „Ég hugsa, þess vegna er ég.“

10.  Eyjaálfu.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Mary Pickford.

Á neðri myndinni er Henrik prins sálugi, eigin­maður Margrétar Dana­drottningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Páll, Rússar gera ekki kröfu til yfirráða á Svalbarða. Þeir hafa hins vegar rétt til afhafnastarfsemi þar samkvæmt samningi við Norðmenn. Reyndar er aðeins einn rússneskur bær eftir þar í byggð, Barentsburg.
    0
  • Páll Pálsson skrifaði
    Eru Rússar búnir að gefa eftir sitt yfirráðasvæði á Svalbarða
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár