586. spurningaþraut: Nokkur lönd, borgir, eitt lítið fjall

Fyrri auka­spurning:

Hvað heitir litla fjallið sem sjá má á þessari mynd Mats Wibe Lund?

***

Aðal­spurningar:

1.  Broddi Broddason hefur um árabil starfað sem ...?

2.  Í hvaða borg er fótbolta­leik­völlurinn Wembley?

3.  Hvað heitir formaður Samfylkingarinnar?

4.  En hver var formaður þar á undan?

5.  Góbi-eyði­mörkin er á mótum tveggja ríka. Hver eru þau?

6.  Jonathan Swift hét írskur rithöfundur sem skrifaði meðal annars um ferðalang sem lenti í ótrúlegum ævintýrum á rápi sínu um þekktar slóðir og óþekktar. Hvað nefndist ferðalangurinn?

7.  Hver skrifaði hins vegar um ljóta andar­ungann?

8.  Í hvaða heimsálfu er landið Bhutan?

9.  Í hvaða ríki falla árnar Efrat og Tígris til sjávar?

10.  Keisarinn Palpatine, öðru nafni Darth Sidious, hvar kemur hann við sögu?

***

Seinni auka­spurning:

Yfir hvaða borg er litið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Frétta­maður.

2.  London.

3.  Logi Einarsson.

4.  Oddný Harðar­dóttir.

5.  Kína og Mongólíu.

6.  Gúllíver.

7.  H.C.Andersen.

8.  Asíu.

9.  Írak.

10.  Í Star Wars bálkinum.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni má sjá Stóra Dímon.

Á neðri myndinni má sjá yfir Kaupmanna­höfn. Þið áttuð nátt­úrlega að þekkja borgina af Sívala­turni neðarlega til vinstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár