578. spurningaþraut: Hvernig skip var Graf Zeppelin? Já, hugsið nú

578. spurningaþraut: Hvernig skip var Graf Zeppelin? Já, hugsið nú

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ríki á hinn fal­lega fána hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er milli­nafn Baracks Obama, sem póli­tískir and­stæð­ingar reyndu stundum að nýta gegn honum?

2.  Í hvaða landi er Gauta­borg?

3.  Í lík­ama hvers okkar eru 206 fyr­ir­bæri af ákveð­inni gerð. Þau eru okkur lífs­nauð­syn­leg en reyndar ekki alveg hvert þeirra fyrir sig. Við þolum sem sagt að missa nokkur þess­ara fyr­ir­bæra án þess að týna endi­lega líf­inu. Hvaða fyr­ir­bæri eru þetta?

4.  Hvað nefn­ist neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið í París?

5.  Yifei Liu lék aðal­hlut­verkið í kvik­mynd sem frum­sýnd var á síð­asta ári í Banda­ríkj­unum, og var end­ur­gerð af rúm­lega 20 ára gam­alli teikni­mynd, líka banda­rískri, þótt sagan ger­ist ann­ars staðar. Myndin heitir eftir kven­hetj­unni sem Yfiei Liu leikur. Og þá heitir myndin sem sagt ... hvað?

6.  Stella McCartney er fimm­tug kona á Bret­landi og þykir afar fram­bæri­leg í sínu starfi, þótt ekki sé hún kannski alveg í allra, allra fremstu röð. Hvað gerir hún?

7.  Hluta af frægð sinni á Stella að þakka föður sínum. Hver er hann?

8.  Hver er fræg­asti leið­togi þræla­upp­reisnar sem braust út í Róma­veldi árið 73 fyrir Krist?

9.  Út í hvaða haf gengur Krím­skagi?

10.  Mestalla síð­ari heims­styrj­öld­ina var þýski flot­inn að basla við að klára stórt og mynd­ar­legt skip sem skírt hafði verið Graf Zeppelin. Það tókst ekki og Graf Zeppelin komst aldrei í notkun. Hvers konar skip var Graf Zeppelin eða átti að verða?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hinn brosmildi piltur á mynd­inni hér að neðan var tákn­mynd tíma­rits sem gefið var út í Banda­ríkj­unum 1952-2018 og var selt víða um heim, þar á meðal hér á Íslandi. Hvað nefnd­ist tíma­ritið?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hussein.

2.  Svíþjóð.

3.  Bein.

4.  Metró.

5.  Mulan.

6.  Hún er fata­hönn­uður, tísku­teikn­ari.

7.  Paul McCartney.

8.  Spartacus.

9.  Svarta­haf.

10.  Flug­móð­ur­skip. Þar sem Zeppelin smíð­aði loft­skip á þetta að liggja beint við.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fáni Albaníu.

Pilt­ur­inn var tákn grín­rits­ins MAD Magazine. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár