COP26 loftslagsráðstefnan enn ein vonbrigðin

Rebecca Foster er ein af full­trúum Bright Blue á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Glasgow. Bright Blue er rann­sókn­ar­stofnun á sviði umhverf­is­mála í Englandi. Að hennar mati er erfitt að merkja stórar breyt­ingar fram undan í lofts­lags­málum.

COP26 loftslagsráðstefnan enn ein vonbrigðin
Frá Loft­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu Þjóðanna COP26 í Glasgow 2021. Mynd: afp

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP26, fer fram í Glasgow dag­ana 31. októ­ber til 12. nóv­em­ber. Miklar vonir hafa verið bundnar við ráð­stefn­una en þó eru margir efins um að ráð­stefnan muni skila árangri þar sem bæði Kína og Rússland hafa gefið út að þau ætli ekki að taka þátt. Kolefn­is­fót­spor Kína er það mesta í heim­inum, en Kína ber ábyrgð á um 30% kolefn­is­mengun heims­ins. Banda­ríkin bera ábyrgð á um 14%, Indland á um 7% og Rússland á um 5%. 

Helstu mark­mið þess­arar ráð­stefnu eru kolefn­is­jöfnun, nátt­úru­vernd, að halda hnatt­rænni hlýnun innan 1,5 °C, að leggja loka­hönd á Par­ís­armark­miðin og þá einna helst 6. grein samn­ings­ins og að setja meira fjár­magn í umhverf­is­að­gerðir. Þrátt fyrir að þjóð­ar­leið­togar hinna ýmsu landa hafi lýst yfir bjart­sýni, þar á meðal Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, þá eru ekki allir jafn von­góðir um að nægum árangri verði náð. Ástæða fyrir svart­sýni almenn­ings og hinna ýmissa umhverf­is­hópa er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár