„Viðtalið eins og hlandblaut tuska í andlit þolenda“

Ung kona, sem segir að Þórir Sæmunds­son leik­ari, hafi not­fært sér ungan aldur hennar fyrir sjö árum, þegar hún var 16 ára og hann 34 ára, segir í sam­tali við Stundina að við­talið við hann á RÚV í gær hafi ýtt undir ger­enda­með­virkni í sam­fé­lag­inu og geri lítið úr þolendum kyn­bund­ins ofbeldis. Sér­fræð­ingur í kyn­bundnu ofbeldi segir mik­il­vægt að ger­endur við­ur­kenni brot sín og reyni að setja sig í spor þolenda til að reyna að sjá þann sárs­auka sem þeir hafa valdið.

„Viðtalið eins og hlandblaut tuska í andlit þolenda“
Jófríður Skafta­dóttir Eftir við­tal Kveiks við leik­ar­ann Þóri Sæmunds­son, þar sem hann sagði fimmtán ára stúlkur hafa gabbað sig til að senda til þeirra kyn­færa­mynd, sagði Jófríður Skafta­dóttir frá því á Twitter að hann hefði verið með henni sextán ára.

„Ég var 16 ára og hann 36 ára, hann not­færði sér það. Hann vissi hvað ég var gömul. Hann reyndi að followa mig á insta um dag­inn mörgum árum seinna, ældi næstum upp í mig. Fer svo að grenja í við­tali og lætur eins og kjáni og fórn­ar­lamb. Dreptu mig ekki #kveikur“

Þetta skrif­aði Jófríður Ísdís Skafta­dóttir á Twitter í gær­kvöldi. Hún seg­ist í sam­tali við Stundina vera að vísa í umtalað við­tal við Þóri Sæmunds­son í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik.

Yfir­skrift við­tals­ins var: „Hreins­un­ar­eldur Þóris Sæmunds­sonar“ og í kynn­ingu þátt­ar­ins er sagt að Þórir hafi verið rísandi stjarna á íslensku leik­sviði en eftir að kyn­ferð­is­leg mynda­send­ing hans hafi kom­ist í hámæli árið 2017 hafi hann verið utan­garðs og fái hvergi vinnu.

Gerendur snúi ekki aftur án iðrunar

Í þætt­inum er spurt hvenær og hvernig fólk sem hafi mis­stigið sig eigi aft­ur­kvæmt í sam­fé­lagið. Og við­brögðin í sam­fé­lag­inu hafa ekki látið á sér standa. Sumt fólk segir mik­il­vægt að ger­endur fái að tjá sig og gagn­rýnir hina svoköll­uðu slauf­un­ar­menn­ingu sem leiði af sér æru­missi, annað fólk gagn­rýnir að ger­endur kom­ist upp með að tjá sig án þess að sýna neina iðrun, án þess að virð­ast vilja bæta fyrir að hafa farið yfir mörk ann­arra, fyrir að hafa beitt ofbeldi, án þess að taka ábyrgð á hegðun sinni.

„Ég var sjokkeruð strax þegar ég sá kynn­ingu þátt­ar­ins“

Jófríður tekur undir þetta og seg­ist ekki skilja þá nálgun að meintir ger­endur geti snúið til baka inn í sam­fé­lagið eins og ekk­ert hafi í skorist án þess að sýna  iðrun og biðja þau sem þeir eru sak­aðir um að hafa brotið á afsök­unar.

„Ég var sjokkeruð strax þegar ég sá kynn­ingu þátt­ar­ins og vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta, svo fyllt­ist ég reiði því ég veit ekki til að þessi maður hafi beðið þær sem hann er sak­aður um að hafa komið illa fram við, afsök­unar,“ segir Jófríður.

Nokkrar konur hafa eftir þátt­inn í gær greint frá sam­skiptum sínum við Þóri á sam­fé­lags­miðlum. Sam­skiptum sem þær segja að hafi átt sér stað þegar þær voru á aldr­inum 16-18 ára og hafi verið óvið­eig­andi.

Jófríður segir í sam­tali við Stundina að ein­hliða umfjöllun ýfi upp ger­enda­með­virkn­ina í sam­fé­lag­inu.

„Ung hug­rökk kona kom fram í fjöl­miðli í gær og sagði frá heim­il­is­of­beldi sem hún hafði orðið fyrir. Hún kom fram undir nafni og myndir voru birtar af henni. Það fékk litlar und­ir­tektir á sam­fé­lag­miðlum svo kemur þetta við­tal við Þóri á RÚV og það fer allt á hlið­ina, fólk sam­hrygg­ist honum og orð eins og „mann­orðs­morð“ eru notuð. Þetta ýtir undir og styrkir ger­enda­með­virkn­ina sem gerir lítið úr þeim sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni eða öðru kyn­bundnu ofbeldi. Þetta við­tal og við­brögð margra við því er hland­blaut tuska í and­litið á þolendum,“ segir Jófríður og bætir við að hún sé að beina orðum sínum til fjöl­miðla sem birti ein­hliða umfjöllun um svo við­kvæm mál.  „Ég er orðin lang­þreytt á því hvernig umræða um kyn­ferð­is­brot er hér á landi. Gerendum er hampað og þolendur eru skrímsla­væddir. Þolendur eru sak­aðir um að eyði­leggja líf og frama ger­enda sinna með því að stíga fram, meðan þeir sjá alveg um það sjálfir með sínum gjörðum og algjörum skorti á iðrun,“ segir Jófríður.  

Hafði veruleg áhrif á hana

Jófríður segir að málið hafi tekið veru­lega á hana þegar hún var 16 ára en að hún hafi unnið mikið úr því síðan. „Þetta var fyrir sjö árum. Ég var mjög ringluð á þessum aldri og brotin. Ég hitti hann eftir að við höfðum náð saman á Tinder. Í prófílnum mínum þar stóð að ég væri 18 ára en þegar ég og Þórir hitt­umst sagði ég honum strax að ég væri 16 ára. Honum fannst ekk­ert athuga­vert við það og við sváfum saman. Það var ekki þvingað sam­ræði, en ég var svo ung og brotin að strax dag­inn eftir lok­aði ég á öll sam­skipti við hann og reyndi að gleyma því sem hafði gerst. Mér leið mjög illa en kunni ekki að orða það sem ég veit í dag að var valda­mis­munun. Hann var ekki bara helm­ingi eldri en ég, og ég ung­lingur, heldur var hann líka frægur leik­ari. Það ýfði sárin þegar fréttir af hans atferli voru sagðar fyrir nokkrum árum og þegar hann reyndi að nálg­ast mig að nýju fyrir nokkrum mán­uðum á Instagram. Það vakti með mér óhug,“ segir Jófríður.

Setji sig í spor þolenda

Sem fyrr segir var spurn­ing Kveiks í gær hvenær og hvernig fólk sem hafi mis­stigið sig eigi aft­ur­kvæmt í sam­fé­lagið. 

Rannveig Ágústa Guð­jóns­dóttir, dokt­or­snemi við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands, hefur skoðað kyn­bundið ofbeldi út frá ger­endum og skoðað sýn ger­anda á gjörðir sínar.  Hún segir að það sé mik­il­vægt að ger­endur gang­ist við brotum sínum, þeim sárs­auka sem þeir hafa valdið með því að setja sig í spor þolenda.

„Það er alls­konar umræða í gangi um þessi mál í sam­fé­lag­inu og hún er að breyt­ast með auk­inni þekk­ingu á afleið­ingum ofbeldis. Það er kom­inn meiri fókus á rétt­læti brota­þola og þeirra rými. Það er ákall eftir þessum breyt­ingum og það eru ekki bara ger­endur sem vilja það heldur brota­þolar líka því umræðan eins og hún er núna er skað­leg fyrir alla, ekki síst brota­þola. Það er talað um að ger­endur sýni iðrun en brota­þolar hafa ekki endi­lega verið að kalla eftir því heldur frekar að ger­endur taki ábyrgð á gjörðum sínum, að þeir gang­ist við brotum sínum og geri eitt­hvað í sínum málum, vinni gagn­gert með óæski­lega hegðun sem veldur öðrum skaða,“ segir Rannveig.

„Það er talað um ger­endur sýni iðrun en brota­þolar hafa ekki endi­lega verið að kalla eftir því heldur frekar að ger­endur taki ábyrgð á gjörðum sínum“
Ágústa Guð­jóns­dóttir
Dokt­or­snemi við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands

Hún segir að það þurfi ekki að fela í sér að þeir komi opin­ber­lega fram eða  biðj­ist afsök­unar. Brota­þolar séu jafn ólíkir og þeir séu margir.

„Við hljótum öll að vilja búa í sam­fé­lagi þar sem fólk á aft­ur­kvæmt á ein­hvern hátt en það er líka flókið að nálg­ast það. Gerendur þurfa að gang­ast við þeim sárs­auka sem þolendur þeirra upp­lifa. Þeir verða að sitja í þessum óþæg­indum, horfast í augu við hegðun sína, setja sig í spor þolenda til að reyna að sjá þann sárs­auka sem þeir hafa valdið. Það er mjög mik­il­vægt að þeir séu ekki að afsaka sig, heldur þvert á móti við­ur­kenna brot sín og sjái sárs­auk­ann sem brotin valda,“ segir Rannveig. Hún vonar að við sem sam­fé­lag séum á réttri leið þó að enn sé nokkuð langt í land.

„Við eigum eftir að taka þátt í mörgum óþægi­legum sam­tölum áður en við náum því jafn­vægi sem þarf til að ná sátt,“ segir Rannveig.  

Ekki náð­ist í Þóri Sæmunds­son við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár