572. spurningaþraut: Napoleon, Oregon, Mordor, Melville, bongó, Chisholm, metan

572. spurningaþraut: Napoleon, Oregon, Mordor, Melville, bongó, Chisholm, metan

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fáni blaktir hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað var móð­ur­mál Napól­e­ons Bónap­artes?

2.  Hvaða fyr­ir­bæri í landa­fræði nefn­ist Oregon?

3.  Hvað af eft­ir­töldum tungu­málum er EKKI rómanskt mál: Franska, króat­íska, portú­galska, rúm­enska, spænska?

4.  Hvaða ríki er styst frá Suð­ur­skauts­land­inu?

5.  Hvar er landið Mordor?

6.  Í hvaða borg var fræg­asta bóka­safn forn­ald­ar­innar?

7.  Hermann Melville var banda­rískur rit­höf­undur sem gaf út nokkrar þykkar bækur. Lang­frægastur er hann fyrir bók sem heitir ...?

8.  Fyrst spyrst til bongó-tromma á ofan­verðri 19. öld á eyju nokk­urri býsna stórri, þótt svip­aðar trommur hafi vissu­lega verið til víðar en á þess­ari einu eyju. En hvaða eyja er það sem sé þar sem hinar einu sönnu bongó-trommur komu fyrst fram?

9.  Shirley Chisholm hét kona ein sem fædd­ist í Banda­ríkj­unum 1924. For­eldrar hennar voru frá Gyuana og Barbados. Hún lærði til kenn­ara en fór fljót­lega að taka þátt í póli­tísku starfi og árið 1968 var hún kosin á Banda­ríkja­þing fyrir hverfi í New York. Hún sat á þingi til 1983 en hélt áfram póli­tískri bar­áttu fram í and­látið 2005. Fyrir hvað er Chisholm einkum minnst vestan hafs?

10.  Hvaða dýra­teg­und, fyrir utan mann­inn, er sögð skipta mestu máli ef draga á úr metan-magni í and­rúms­loft­inu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ítalska. Nákvæmt svar væri ítölsk mál­lýska á Korsíku en ítalska dugar.

2.  Ríki í Banda­ríkj­unum.

3.  Króat­íska.

4.  Tjíle.

5.  Í sagna­heimi J.R.R.Tolkien.

6.  Alex­andríu í Egifta­landi.

7.  Moby Dick.

8.  Kúba.

9.  Fyrsta svarta konan sem var kosin á þing þar vestra.

10.  Naut­gripir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er írski fán­inn.

Á neðri mynd er Viktoría krón­prinsessa Sví­þjóðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár