568. spurningaþraut: „... en hann skal drottna yfir þér“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða kykvendi má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir helsta, elsta og mesta trú­ar­rit múslima?

2.  Purana-bæk­urnar (eða verkin) og Itihasa-bæk­urnar eru aftur á móti meðal mik­il­vægra trú­ar­rita hjá fylgj­endum ann­arra útbreiddra trú­ar­bragða. Hver eru þau trú­ar­brögð?

3.  Hvar bjuggu hinir fornu Etrúrar fyrir eitt­hvað um 2.500 árum?

4.  Ígor Sikorsky hét maður sem fædd­ist í Kíev í Úkraínu árið 1889. Hann var braut­ryðj­andi í þróun á ... hverju?

5.  Hver skrif­aði um Oliver Twist?

6.  En hver tvistar til að gleyma?

7.  Hvaða konu var sagt að hún myndi „hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér“?

8.  En hver var „bæði ljúf og góð [og hýr og rjóð] og hún var líka þæg“?

9.  Hvaða ár var for­seti Íslands síð­ast sjálf­kjör­inn í for­seta­kosn­ingum?

10.  Charizard, Onix, Mewtwo, Eevee, Gengar, Mew, Snorlax og síð­ast en ekki síst Pikachu haf­ast við í ver­öld ... ja, hvaða ver­öld?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þing­konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kóran.

2.  Hindúasið.

3.  Á Ítalíu.

4.  Þyrlum.

5.  Charles Dickens.

6.  Óliver Tvist eða Sæmi Rokk.

7.  Evu.

8.  Dimmalimm.

9.  2008.

10.  Pókemona.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er kamelljón.

Á neðri mynd­inni er Steinunn Þóra þing­maður VG. Hún er Árna­dóttir en eins og venju­lega þegar fólk heitir tveim nöfnum og notar bæði, þá er óþarfi að vita það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár