567. spurningaþraut: Hver man eftir tvíburunum Cameron og Tyler Winklevoss?

567. spurningaþraut: Hver man eftir tvíburunum Cameron og Tyler Winklevoss?

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða borg eru þessar spírur?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða fjall­garður skilur að Evrópu- og Asíu­hluta Rúss­lands?

2.  Á hvaða hljóð­færi í Bítlunum spil­aði Paul McCartney aðal­lega?

3.  Árni Magn­ús­son er í Íslands­sög­unni kunn­astur fyrir að hafa safnað ... hverju?

4.  Vinsæll en umdeildur (einkum framan af) tölvu­leikur sem til er í mörgum útgáfum ger­ist meðal ann­ars í borgum sem kall­aðar eru Liberty City, Vice City og San Andreas.  Hvaða tölvu­leikur er það?

5.  Frances McDormand vann Ósk­arsverð­laun sem besta leik­konan í aðal­hlut­verki fyrr á þessu ári. En í hvaða mynd lék hún svo vel?

6.  Þetta var í þriðja sinn sem hún fékk þessi eft­ir­sóttu verð­laun. Hún fékk þau fyrst 1995 og svo 2017. Í fyrri mynd­inni lék hún óléttan lög­reglu­stjóra, en hvað hét myndin? Þið megið svo sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið munið hvað myndin frá 2017 hét, staf­rétt!

7.  Í Ind­lands­hafi eru nokkur eyríki, og þar af eru þrjú lítil ríki sem til­heyra Afríku. Nefna þarf að minnsta kosti tvö þeirra til að fá stig. Takið eftir orð­inu „lítil“ — langstærsta eyríkið við Afr­íku­strendur Ind­lands­hafs telst ekki með í þess­ari spurn­ingu.

8.  En meðal ann­arra orða — hvað heitir það?!

9.  Og hvaða dýr, fjar­skyld okkur mönn­unum, búa nú aftur þar og hvergi ann­ars staðar?

10.  Banda­rísku tví­burarnir Cameron og Tyler Winklevoss eru að ýmsu leyti afreks­menn. Þeir tóku þátt í róðr­ar­keppni á Ólymp­íu­leik­unum 2008 en eru nú kunn­ari sem athafna­menn, og hafa eign­ast mikil auð­æfi í raf­mynt og ýmsu þvíum­líku. Allra kunn­astir eru tví­burarnir samt fyrir mála­rekstur sem þeir hófu árið 2004, aðeins 23 ára gamlir. Þá fóru þeir í mál við kunn­ingja sinn og skóla­bróður sem þeir töldu hafa hlunn­farið sig illa. Hver var sá?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Úral­fjöll.

2.  Bassa.

3.  Hand­ritum.

4.  Grand Theft Auto.

5.  Noma­d­land.

6.  Fargo. Myndin frá 2017 heitir Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri og þið þurfið að hafa nafnið nákvæm­lega rétt til að fá lár­við­ar­stig.

7.  Comoros-eyjar, Seychelles-eyjar og Máritíus. Þið fáið sem sagt stig fyrir að nefna tvö af ríkj­unum.

8.  Madaga­skar.

9.  Lemúrar.

10.  Zuckerberg for­stjóri Facebook. Raunar fór fyr­ir­tæki bræðr­anna í mál við Facebook en við orðum þetta svona.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á neðri mynd­inni er Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra.

Hér má sjá mynd­ina í heilu lagi.

Spír­urnar á efri mynd­inni til­heyra Gaudi-dóm­kirkj­unni í Barcelona.

Basílica i Temple Expi­atori de la Sagrada Famíliasem Antoni Gaudi teikn­aði og rís í Barcelona.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár