566. spurningaþraut: Hvaða skötuhjú eru annáluð fyrir flærð og lygar?

Fyrri auka­spurning:

Hver er fyrirsætan á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Svo má spyrja líka: Hver málaði myndina?

2.  Nafnið á þéttbýlis­stað nokkrum fjölmennum hér í nágrenni við okkur bendir til þess að þar hafi verið bækistöðvar verslunar­manna. Hann heitir nefnilega ...?

3.  Hvaða kven­persóna í Njálu er annáluð fyrir flærð, undir­ferli og lygar?

4.  Þrátt fyrir óorð það sem af kven­persónunni fer, þá á hún sér þó formælendur ýmsa. Sú er ekki raunininn um þá karlkyns persónu í Njálu sem líka er annáluð fyrir flærð, undir­ferli og lygar — því fáir hafa orðið til að halda uppi vörnum fyrir hann. Hvað heitir þessi annálaði lygari?

5.  Nadime Gordimer fékk Nóbels­verðlaun í bókmenntum 1991 og J. M.Coetzee tólf árum síðar. Þau eru frá sama landinu. Hvaða land er það?

6.  Fyrst við erum komin út í Nóbels­verðlaun, þá hafa eftir­taldir bandarískir höfundar allir fengið Nóbelinn: Sinclair Lewis, Eugene O'Neill, Ernst Hemingway, John Steinbeck og Toni Morrison. Hver af þessum fimm höfundum er fyrst og fremst kunnur fyrir leikrit?

7.  Hvernig er bíll Andrésar Andar á litinn?

8.  Hver leikur lögreglu­foringjann Þorgerði í kvik­myndinni Cop Secret eða Leyni­lögga?

9.  Árið 1964 kom skipið Siglfirðingur til landsins. Skipið var af nýrri gerð sem átti eftir að ryðja sér almennilega til rúms fáeinum árum síðar þegar sann­kallað kapphlaup hófst á Íslandi um slík skip. Hvers konar skip var Siglfirðingur?

10.  Veiru­sjúkdóm einn er hægt að rekja til óvenju margra veiru­tegunda og eru nokkrar þeirra svokallaðar kóróna­veirur, eins og sú sem veldur Covid-19. En aðrar tegundir valda líka þessum sama sjúkdómi, svo sem adenóvírus (eitla­veira), enterovírus (iðraveira) og þó alveg sérstak­lega rhínóvírus (nasaveira). Hvaða sjúkdóm er hér um að ræða?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er maðurinn á myndinni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Warhol.

2.  Kaupmanna­höfn.

3.  Hall­gerður.

4.  Mörður.

5.  Suður-Afríka.

6.  O'Neill.

7.  Rauður.

8.  Steinunn Ólína.

9.  Skut­togari.

10.  Kvef.

***

Svör við auka­spurningum:

Marilyn Monroe er fyrirmynd Warhols á efri myndinni.

Á neðri myndinni Jóhann heitinn Jóhannsson tónskáld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár