560. spurningaþraut: Hér reynir á kunnáttu í Biblíusögunum

560. spurningaþraut: Hér reynir á kunnáttu í Biblíusögunum

Hér eru komnar spurn­ingar upp úr Bibl­í­unni. Fyrri auka­spurn­ing er ein­föld: Hvað heita kon­urnar tvær á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Í upp­hafi var orðið og orðið var hjá guði og orðið var guð.“ Hvaða bók Bibl­í­unnar hefst á þessum orðum?

2.  Hvað hét sá sonur Jakobs sem fluttur var til Egifta­lands eftir að bræður hans höfðu selt hann í þræl­dóm, en átti eftir að verða þar mekt­ar­maður?

3.  Hve marga læri­sveina gerði Jesúa að sér­stökum postulum sínum?

4.  Í Gamla testa­ment­inu segir frá því að Ísra­els­menn vildu legga undir sig víg­girta borg og gengu kringum hana blásandi í lúðra og hrundu þá múrar borg­ar­innar. Hvaða borg var það?

5.  Á hvaða fjalli fékk Móse boð­orðin tíu frá guði?

6.  Hvað voru aðrir Ísra­els­menn flestir að gera á meðan Móse var á fjall­inu að ráðg­ast við guð?

7.  Í spá­dóms­bók Jesaja segir um fram­tíð­ina: „Urð­ar­kettir og sjakalar munu koma þar saman og geita­púkar munu mæt­ast þar. Þar staldrar Lilít einnig við og finnur þar hvíld­ar­stað.“ Þetta er í eina skiptið í Bibl­í­unni sem Lilít er nefnd á nafn og virð­ist hún þá orðin ein­hvers konar næt­ur­norn. En sam­kvæmt þjóð­sögum Gyðinga hafði Lilít upp­haf­lega allt annað hlut­verk, en það var svo vand­lega þaggað niður. Því Lilít var í þjóð­sög­unum sögð vera ...?

8.  Hvað hét róm­verski land­stjór­inn sem hafði umsjón með kross­fest­ingu Jesúa frá Nasaret?

9.  Í Nýja testa­ment­inu eru fjórir bræður Jesúa frá Nasaret nefndir á nafn. Hvað hétu þeir? Nefna þarf tvo þeirra rétt til að fá stig.

10.  „Og ég sá er lambið rauf sjötta inn­siglið að mik­ill land­skjálfti varð og sólin varð svört sem hæru­sekkur og allt tunglið varð sem blóð. Og stjörnur him­ins­ins hröp­uðu niður á jörð­ina eins og þegar fíkju­tré, skekið af storm­vindi, fellir haustaldin sín. Og him­inn­inn svipt­ist burt eins og þegar bók­fell vefst saman og hvert fjall og ey færð­ist úr stað sínum. Konungar jarð­ar­innar, höfð­ingjar og her­for­ingjar, auð­menn og mekt­ar­menn, hver þræll og þegn fólu sig í hellum og í hömrum fjalla.“ Hvaða bók Bibl­í­unnar birtir þessa ugg­væn­legu fram­tíð­ar­spá?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir Ísra­els­kon­ung­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jóhann­es­ar­guð­spjall.

2.  Jósef.

3.  Tólf.

4.  Jeríkó.

5.  Sínaí.

6.  Þeir döns­uðu kringum gull­kálf.

7.  Hún var sögð vera fyrsta kona Adams — á undan Evu, sem sé — en „kona Adams“ nægir alveg.

8.  Pílatus.

9.  Þeir hétu Jakob, Jóse (eða Jósef), Símon og Júdas. Hafa þarf tvö nöfn rétt til að fá stigið góða.

10.  Opin­ber­un­ar­bók Jóhann­esar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má aug­ljós­lega sjá þær Mörtu og Maríu. María sat við fót­skör meist­ar­ans og hlýddi á orð hans en Marta mædd­ist í mörgu.

Á neðri mynd­inni dæmir hinn vitri Salómon kon­ungur í máli þar sem tvær konur sögð­ust eiga sama barnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár