559. spurningaþraut: Á dögum Haralds hárfagra, Hálfdanar svarta, Guðröðar veiðikonungs, Hálfdanar matarilla og Eysteins frets

559. spurningaþraut: Á dögum Haralds hárfagra, Hálfdanar svarta, Guðröðar veiðikonungs, Hálfdanar matarilla og Eysteins frets

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða borg bjó konan á mynd­inni hér að ofan, þá myndin var tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kim Kar­dashian er víð­fræg banda­rísk sjón­varps­stjarna. Nafnið Kim er stytt­ing á skírn­ar­nafni hennar sem er ...?

2.  Kar­dasian-fólkið er ættað frá til­teknu landi í Kákasus-fjöllum, eins og -ian end­ingin á nafn­inu bendir til. Hvaða land er það?

3.  Önnur banda­rísk söng-, kvik­mynda- og sjón­varps­stjarna er líka ættuð frá sama land­inu í Kákasus-fjöllum og ber ætt­ar­nafn sem líka endar á -ian, en hún notar það að vísu aldrei þegar hún kemur fram — heldur aðeins skírn­ar­nafn sitt, eða rétt­ara sagt stytt­ingu á skírn­ar­nafni sínu. Hvaða vin­sæla söng- og leik­stjarna er þetta? Lár­við­ar­stig fá þeir sem þekkja ætt­ar­nafnið úr fjöll­unum!

4.  Fyrst við erum stödd í banda­ríska skemmti­brans­anum, þá skal næst spurt um leik­ara af karl­kyni sem fékk Ósk­arsverð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki árið 1994 fyrir hlut­verk sitt í mynd­inni Phila­delphia, þar sem hann lék lög­fræð­ing sem er rek­inn úr vinnu vegna þess að hann þjáð­ist af til­teknum sjúk­dómi. Hvað heitir leik­ar­inn?

5.  En hvaða sjúk­dómur þótti svo ótta­legur árið 1994?

6.  Svo brá við að ári seinna fékk leik­ar­inn aftur Ósk­arsverð­laun fyrir bestan leik karla í aðal­hlut­verki. Myndin heitir eftir per­són­unni sem leik­ar­inn lék, óvenju­legum en víð­örlum manni, sem hét ...?

7.  Árið 390 fyrir Krist görg­uðu gæsir í borg einni frægri, og vör­uðu íbú­ana við því að árás­ar­menn nálg­uð­ust. Hvaða borg var þetta?

8.  En í hvaða ríki er borgin Graz?

9.  Hvaða viku­dagur var áður fyrr kall­aður Týsdagur?

10.  Þekkt Íslend­inga­saga hefst á þessa leið: „Það var á dögum Haralds kon­ungs hins hárfagra, Hálf­danar sonar hins svarta, Guðröðar sonar veiði­kon­ungs, Hálf­danar sonar hins milda og hins mat­ar­illa, Eysteins sonar frets, Ólafs sonar tré­telgju Svía­kon­ungs, að sá maður kom skipi sínu til Íslands í Breiðdal, er Hall­freður hét. Það er fyrir neðan Fljóts­dals­hérað. Þar var á skipi kona hans og sonur, er [XXX] hét. Hann var þá fimmtán vetra gam­all, mann­vænn og gervi­legur.“ Hvað hét þessi sonur, sem sagan dregur jafn­framt nafn sitt af?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Sverðið hér að neðan fannst fyrir eitt­hvað um þrem vikum á fjög­urra metra dýpi í sjó. Hvaða hópi manna er talið víst að sverðs­eig­and­inn hafi til­heyrt?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kimberley.

2.  Armeníu.

3.  Cher. Hún heitir fullu nafni Cherilyn Sark­isian.

4.  Tom Hanks.

5.  AIDS.

6.  Forrest Gump.

7.  Róm.

8.  Aust­ur­ríki.

9.  Þriðju­dagur.

10.  Hrafn­kell. Sagan er Hrafn­kels­saga Freys­goða.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hún Suze Rotolo bjó að sjálf­sögðu í New York þegar myndin var tekin.

Hún var þá kærasta Bob Dylans tón­list­ar­manns og mynd af þeim saman prýddi umslagið á nýrri plötu Dylans.

Þau skötu­hjú bjuggu þá í New York eins og allir hljóta að vita.

Freewheeling' hét platan.

Sverðið á neðri mynd­inni var aftur á móti í eigu kross­fara. 

Ég ætla að gefa rétt líka fyrir must­er­is­ridd­ara, enda gæti kross­far­inn hafa til­heyrt reglu þeirra.

Hér að neðan eru svo hlekkir á eldri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár