Eignanet útgerðanna

Eign­ar­hlutir útgerð­ar­fyr­ir­tækja í óskyldum greinum teygja sig um allt sam­fé­lagið. Hundruð fyr­ir­tækja eru hluti af flóknu neti þar sem finna má anga útgerð­anna. Fjöl­miðlar, fast­eignir og trygg­ingar eru meðal geira sem útgerð­irnar hafa keypt sig inn í.

Samherji og Síld­ar­vinnslan eru í sér­flokki þegar kemur að fjár­fest­ingum í óskyldum greinum. Eign­ar­hlutur Síld­ar­vinnsl­unnar í Sjóvá-Almennum hefur þar mikil áhrif enda eðli trygg­inga­fé­laga að fjár­festa víða.

Breytt eign­ar­hald Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hefur þó fært fjár­fest­ingar sem áður voru bein­tengdar útgerð­inni til hliðar við hana. Samherji Holding er fjár­fest­inga­fé­lag Samherja en það er nú aðal­lega í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar, sem arf­leiddu börn sín að íslenskum útgerð­ar­hluta. Samherji hf., félagið sem heldur utan um útgerð­ar­fé­lögin Samherja Ísland hf., Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga og eign­ar­hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í öðrum útgerð­ar­fé­lögum, svo sem Síld­ar­vinnsl­unni, á aftur á móti lít­inn hluta í Samherja Holding.

Í gegnum það eign­ar­hald fer til að mynda eign­ar­hlutur Samherja á Eim­skipa­fé­lagi Íslands, þar sem Baldvin Þor­steins­son, einn erf­ingj­anna, situr í stóli stjórn­ar­for­manns. Bein fjár­fest­ing í versl­un­ar­ris­anum Högum tengir svo Samherja inn í mat­vöru­versl­anir sem flestir Íslend­ingar versla við endrum og eins.

Önnur útgerð­ar­fé­lög hafa ekki fjár­fest jafn víða og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urnar sem eiga fisk­ana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.
„Þýðir ekkert endalaust að  horfa bara niður á bryggju“
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár