Það sem eigendur kvótans eiga

Eign­ar­hlutir eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna í ótengdum atvinnu­greinum.

Það sem eigendur kvótans eiga

Útgerð­ar­fé­lög hafa greitt eig­endum sínum mynd­ar­legan arð á síð­ustu árum. Arð sem hefur verið not­aður til fjár­fest­inga bæði í grein­inni sjálfri en líka í óskyldum greinum. Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar voru eignir 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna raktar, eins og þær birt­ast í nýj­ustu árs­reikn­ingum þeirra. En hverjar eru eignir eig­enda þess­ara útgerða? Samkvæmt grein­ingu Stund­ar­innar eru 65 mis­mun­andi lög­að­ilar, það er að segja fyr­ir­tæki, í eig­enda­hópi þeirra útgerða sem á síð­ustu fimm árum hafa verið meðal 20 stærstu útgerða lands­ins. Ekki er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um eignir ein­stak­ling­anna sem standa á bak við þessi fyr­ir­tæki.

Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna eru víða en fast­eigna­fé­lög, bankar og trygg­inga­fé­lög eru áber­andi. Í gegnum þessi félög nær eigna­net eig­enda afla­heim­ild­anna ansi víða. Trygg­inga­fé­lögin VÍS og Sjóvá-Almennar og Arion banki eru svo sjálf á meðal þeirra sem fjár­fest hafa í útgerð. Trygg­inga­fé­lög fjár­festa gjarnan í breiðum hópi fyr­ir­tækja til að dreifa áhættu og tryggja ávöxtun …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urnar sem eiga fisk­ana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.
„Þýðir ekkert endalaust að  horfa bara niður á bryggju“
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár