Stóru blokkirnar stækka enn og eiga nú 60 prósent kvótans

Hlut­deild stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins og þeirra blokka sem mynd­ast hafa á meðal þeirra hefur auk­ist frá því sem var fyrr á árinu. Þetta sýna nýbirtar tölur yfir afla­hlut­deild ein­stakra útgerða sem Fiski­stofa heldur utan um.

Stóru blokkirnar stækka enn og eiga nú 60 prósent kvótans

Þrjár kvóta­blokkir fara með 59,73 pró­sent allra afla­heim­ilda á Íslandi, sam­kvæmt nýbirtum tölum Fiski­stofu. Það er tals­vert meira en áður en auknum loðnu­kvóta var úthlutað. Þá fóru sömu blokkir sam­tals með 46,92 pró­sent afla­heim­ild. Þetta þýðir að stærstu útgerð­irnar eru orðnar enn stærri en áður. Enn er ólokið vinnu við að yfir­fara upp­lýs­ingar um afla­hlut­deild tengdra aðila en sú vinna er hafin hjá Fiski­stofu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar. Það mun breyta hlut­deild­ar­tölu hverrar stór­út­gerðar tals­vert, en eins og rakið var í fyrri hluta sjáv­ar­út­vegs­skýrslu Stund­ar­innar sem fylgdi síð­asta tölu­blaði eru mikil eigna­tengsl á milli stærstu útgerð­anna og minni aðila. 

Langt umfram leyfileg mörk

Sú allra stærsta, Brim, er komin yfir leyfi­lega hámarks­hlut­deild í afla­heim­ildum sam­kvæmt gögnum Fiski­stofu, með sam­tals 13,2 pró­sent hlut­deild. Lög kveða á um að ein­staka útgerð­ar­fyr­ir­tæki og tengdir aðilar megi bara hafa 12 pró­sent hlut­deild. Fiski­stofa gerði sér­stak­lega grein fyrir því í til­kynn­ingu þann 3. nóv­em­ber að Brim …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég bara næ engu efni af heimildinni á símann minn þó ég sé inn skráð þá stendur þú ert ekki innskráð skráðu þig til að lesa blaðið. Það fyrst mér skrýtiðbiðja um áð lagaþað ég er alltaf að biðja ykkur en ekkert gerist í málinu af hverju það
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urnar sem eiga fisk­ana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.
„Þýðir ekkert endalaust að  horfa bara niður á bryggju“
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár