Myndband: Aðalsteinn Kjartansson

„Þýðir ekkert endalaust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.

„Fólk vann hér alla daga, við störfin hér og þar,“ sungu Fjalla­bræður hér um árið en text­inn er eins konar ást­ar­óður til Flat­eyrar, skrif­aður af manni sem flutti þangað á þeim tíma sem þorpið iðaði af lífi og fjöri, þar var fullt af fólki og næga vinnu að fá. Síðar í text­anum spyr hann hvort það sé hafið eða fjöllin sem laði hann að – eða kannski fólkið. Nú er fólkið flest farið, vinnu varla að fá og þorpið hefur þurft að ganga í gegnum end­ur­nýjun líf­daga. En þeir sem eru hér enn eru bjart­sýnir á fram­tíð­ina, trúa því að hér séu tæki­færi til þess að skapa eitt­hvað nýtt og spenn­andi.  

Hlaupahópurinn 

Gunnu kaffi á Flateyri er allt í senn sam­komu­staður, mat­salur og sjoppa. Þangað koma þorps­búar eftir nauð­synjum og setj­ast aðeins niður. Gunnu kaffi stendur við aðal­göt­una, með útsýni út á höfn­ina. Framhjá Gunnu kaffi hleypur lít­ill …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Það vantar sárlega Hjúkrunarheimili á landinu og tilvalið að byggja 40 manna heimili þarna og skapa atvinnu !
    0
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Lífið er ekki lengur saltfiskur í dag og ekki er lengur bóndi er bústolpi
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Flateyri liggur steinsnar frá gjöfulum fiskimiðum. Það sama verður ekki sagt um Akureyri en þar hafa aflaheimildir margfaldast frá setningu kvótalaganna.
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Kvótasalan eyðilagði Flateyri á sínum tíma. Það er alveg fast í mínum huga.
    3
  • Gerdur Palmadottir skrifaði
    Mögnuð grein um heimsókn til orkubús Flateyringa sem býr í þeirra hugviti og innri krafti, Það má læra heilmikið af þessum mannskap. Takk fyrir mig.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urnar sem eiga fisk­ana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár