Óvæntar gleðistundir: Þegar ég sá Debbie Harrie

Debbie Harry úr Blondie kom til Íslands á dög­unum og var heið­urs­gestur RIFF – alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Reykja­vík. Debbie Harrie, sem stundum hefur verið líkt við Marilyn Monroe, sögð vera pönk­út­gáfan af henni, spjall­aði við gesti í Háskóla­bíói 2. októ­ber síð­ast­lið­inn en miði á við­burð­inn flögraði eins og lit­ríkt fiðr­ildi til Mar­grétar Mart­eins­dóttur klukku­tíma áður en gestum var hleypt inn í stóra sal­inn í bíó­inu.

Margar af eft­ir­minni­leg­ustu stundum lífs míns hafa, hingað til, skotið óvænt upp koll­inum og tengj­ast tón­leikum sem ég hef ekki náð að kaupa miða á en hefur áskotn­ast aðgangur að dýrð­inni með stuttum fyr­ir­vara. Þetta hafa verið miðar sem hafa flögrað um án eig­anda og ratað til mín.

 Það gerð­ist í októ­ber árið 2011 þegar ég sá Sinead O'Connor spila í Frí­kirkj­unni. Það gerð­ist í nóv­em­ber 2015 þegar John Grant spil­aði í Hörpu I wanted to change the world But I could not even change my underwear. Líka þegar ég sá Patti Smith á Kexinu árið 2011. Þá var band skylm­ing­ar­þrælsins nýsjá­lenska, Russell Crowe, að spila og Patti Smith var leynig­estur. Hún birt­ist á svið­inu þegar Crowe og félagar voru búnir að spila nokkur lög og söng Because the night.

Ég stóð svo nálægt Patti Smith þetta kvöld að ég hefði getað fléttað á henni hárið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár