Skuldirnar út af fjölmiðlaævintýri Björgólfs Thors komnar yfir milljarð

Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttar­lögmaður og eigandi Dalsdals ehf., segir að unnið sé að uppgjöri félagsins sem var milli­liður í viðskiptum með hlutabréf í DV. Engar nýjar fjár­festingar hafa verið gerðar í félaginu og eini lánveitandi þess er fjár­festingar­félags Björgólfs Thors. Enn á huldu af hverju Björgólfur fjár­magnaði rekstur DV.

Skuldir eignarhalds­félagsins Dalsdals ehf., sem notað var sem milli­liður í viðskiptum með hlutabréf í DV, við fjár­festingar­félag Björgólfs Thors Björgólfs­sonar fóru yfir einn milljarð króna í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem nýlega var skilað til ársreikninga­skrár. Nýjar langtíma­skuldir upp á 80 milljónir króna bættust við skuldastööðu Dalsdals ehf. í fyrra. Langtíma­skuldir félagsins stóðu í nákvæmlega 1 milljarði í lok árs í fyrra. 

Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttar­lögmaður og eini hluthafi Dalsdals ehf., segir að bæst hafi við skuldirnar í fyrra vegna þess að félagið var í rekstri tengdum viðskiptunum með DV. Hann segir að unnið sé að því að gera félagið upp og að ekki hafi verið ráðist í neinar fjár­festingar inni í því. 

Dalsdalur ehf. er félag sem stofnað var til að kaupa og eiga hlutabréf í félaginu Frjálsri fjöl­miðlun ehf. sem svo átti og rak dagblaðið DV og heima­síðuna DV.is. Dalsdalur fékk láni hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eignarhald DV

FréttirEignarhald DV

Novator sagði ósatt um lán til Frjálsrar fjöl­miðlunar í rúm tvö og hálft ár

Fjár­festingar­félagið Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfs­sonar, veitti fjöl­miðlum ítrekað rangar upplýsingar um 745 lán fyrir­tækisins til fjölmiðla­fyrirtækis. Ragnhildur Sverris­dóttir, fyrr­verandi upplýsinga­trúi Novator, hætti þar í janúar. Andrés Jónsson segir að eitt það versta sem komið getur fyrir almanna­tengil sé að segja fjöl­miðlum ósatt.
FréttirEignarhald DV

Neituðu því að Björgólfur væri bakhjarl DV: „Lítið um skjal­festar heimildir fyrir því sem ekki er“

Eigandi DV vildi ekki greina frá því hver lánaði félagi sínu tæpan hálfan milljarð til að fjármagna taprekstur. Talskona Björgólfs Thors Björgólfs­sonar neitaði því að hann væri lánveit­andinn. Samkeppnis­eftirlitið hefur birt upplýs­ing­arnar vegna samruna eigenda DV og Frétta­blaðsins. Þar kemur í ljós að Björgólfur Thor stóð að baki útgáfunni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár