Fimm aflandstrikk sem fræga fólkið notar

Julio Iglesias, Sir Elton John og Ángel Di María nota allir ólíkar leiðir til að hagn­ast með aðstoð aflands­fé­laga. Fræga fólkið dælir fast­eigna­við­skiptum, ímynd­ar­réttum og tekjum af list­sköpun í gegnum félögin til að fela eign­ar­hald og forð­ast eft­ir­lit og skatt­greiðslur.

Fimm aflandstrikk sem fræga fólkið notar
Shakira, Ringo Starr, Claudia Schiffer og Julio Iglesias Fræga fólkið notar félög á lág­skatta­svæðum til að borga minna í skatt.

Shakira gerði það. Líka Ringo Starr, Claudia Schiffer, Julio Iglesias og krikket­stjarnan Sachin Tendulkar.

Þau hafa öll stofnað aflands­fé­lög á stöðum eins og á Bresku Jóm­frúa­eyjum þar sem skattar eru lágir eða engir og fyr­ir­tækin þeirra og fólkið á bak við þau eru falin fyrir almenn­ingi.

Þau eru á meðal þess fræga fólks, stjórn­mála­manna og millj­arða­mær­inga sem nefnd eru í skjölum sem var lekið til alþjóð­legra sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, International Consortium of Investigative Journalists (ICIJ). Þessi gögn eru hluti af Pand­óru­skjöl­unum, rann­sókn á aflands­fjár­mála­kerf­inu sem gerir ríkum og frægum kleift að kaupa snekkjur og einka­þotur, fjár­festa í fast­eignum og vernda ætt­ar­auð með því að kom­ast undan eft­ir­liti. Stundin og Reykja­vík Media vinna úr skjöl­unum á Íslandi.

Að stofna aflands­fyr­ir­tæki og -sjóði er auð­velt, hlut­falls­lega ódýrt og í mörgum til­fellum lög­legt. Fræg mann­eskja sem býr í Lundúnum eða Los Angeles, til dæmis, getur ráðið fjár­mála­þjón­ustu í „lög­sögu leyndar“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Viðskiptavild helmingurinn af 5,5  milljarða kaupum Kviku af hluthöfum bankans
Viðskipti

Við­skipta­vild helm­ing­ur­inn af 5,5 millj­arða kaupum Kviku af hlut­höfum bank­ans

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Kvika, sem er meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, keypti meiri­hluta í bresku fast­eigna­veð­lána­fyr­ir­tæki árið 2022. Fyr­ir­tækið var áður í eigu for­stjóra Kviku, Ármanns Þor­valds­sonar, sem starf­aði þar í nokkur ár. Þeir sem seldu Kviku fyr­ir­tækið voru meðal ann­ars stærsti einka­að­il­inn í hlut­hafa­hópi bank­ans, Stoðir. FME hefur áður sektað Kviku út af við­skiptum sem tengj­ast Ortus. Kvika segir ekk­ert athuga­vert við við­skiptin og að hlut­laustir utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar hafi komið að þeim.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Úkraínski sígarettukóngurinn sem fór með konu í stríð
ÚttektPandóruskjölin

Úkra­ínski sígar­ettu­kóng­ur­inn sem fór með konu í stríð

Pand­óru­skjölin sýna hvernig úkra­ínskur með­fram­leið­andi íslensku verð­launa­mynd­ar­innar Kona fer í stríð sækir í aflands­sjóð til að fjár­magna kvik­mynda­verk­efni sín. Uppruni pen­inga hans er gríð­ar­stórt sígar­ettu­veldi í Úkraínu. Fram­leið­andi mynd­ar­innar full­yrðir þó að þeir pen­ingar hafi ekki verið not­aðir við gerð íslensku mynd­ar­innar.
Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár