Úkraínski sígarettukóngurinn sem fór með konu í stríð

Pand­óru­skjölin sýna hvernig úkra­ínskur með­fram­leið­andi íslensku verð­launa­mynd­ar­innar Kona fer í stríð sækir í aflands­sjóð til að fjár­magna kvik­mynda­verk­efni sín. Uppruni pen­inga hans er gríð­ar­stórt sígar­ettu­veldi í Úkraínu. Fram­leið­andi mynd­ar­innar full­yrðir þó að þeir pen­ingar hafi ekki verið not­aðir við gerð íslensku mynd­ar­innar.

Úkraínski sígarettukóngurinn sem fór með konu í stríð

„Það var sönn ánægja að lesa hand­rit „Kona fer í stríð“ sem við trúum að verði mjög góð kvik­mynd,“ skrifar Liudmyla Bobruiko fyrir hönd Tortóla­fé­lags­ins Millgate Holdings Limited í apríl árið 2017. Tilefni bréfs­ins var að stað­festa fyr­ir­ætl­anir um 120 þús­und evra, eða tæp­lega 18 millj­óna króna, fjár­fest­ingu í mynd­inni í gegnum franska fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Slot Machine SARL, félags í eigu dansk-franska kvik­mynda­fram­leið­and­ans Marienna Slot.

Millgate Holdings Limited er skatta­skjóls­fé­lag í eigu ann­ars kvik­mynda­fram­leið­anda, Úkra­ínu­manns­ins Serhiy Lavr­enyuk. Upp­lýs­ingar um það er meðal þeirra gagna sem eru hluti af hinum svoköll­uðu Pand­óru­skjölum; sam­an­safni 11,9 millj­óna skjala sem lekið var til sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, frá fjórtán fyr­ir­tækjum sem sér­hæfa sig í að setja upp og reka aflands­fé­lög og -sjóði. Stundin og Reykja­vík Media eru þeir íslensku fjöl­miðlar sem vinna úr skjöl­unum.

Engar vís­bend­ingar eru um að lög hafi verið brotin við fjár­mögnun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Viðskiptavild helmingurinn af 5,5  milljarða kaupum Kviku af hluthöfum bankans
Viðskipti

Við­skipta­vild helm­ing­ur­inn af 5,5 millj­arða kaupum Kviku af hlut­höfum bank­ans

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Kvika, sem er meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, keypti meiri­hluta í bresku fast­eigna­veð­lána­fyr­ir­tæki árið 2022. Fyr­ir­tækið var áður í eigu for­stjóra Kviku, Ármanns Þor­valds­sonar, sem starf­aði þar í nokkur ár. Þeir sem seldu Kviku fyr­ir­tækið voru meðal ann­ars stærsti einka­að­il­inn í hlut­hafa­hópi bank­ans, Stoðir. FME hefur áður sektað Kviku út af við­skiptum sem tengj­ast Ortus. Kvika segir ekk­ert athuga­vert við við­skiptin og að hlut­laustir utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar hafi komið að þeim.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár