Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi hefur beðist afsökunar og segist harma stöðuna sem upp er komin eftir talningu og endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Ábyrgðin sé hennar en ekki talningarfólks eða starfsmanna á talningarstað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu yfirkjörstjórnarinnar.

„Við viljum biðja frambjóðendur og kjósendur afsökunar, en ítrekum að talningarfólk og starfsfólk á talningarstað sinnti starfi sínu af alúð og heilindum,“ segir í henni.
Talning atkvæða og hvernig yfirkjörstjórnin stóðu að henni hefur stætt gagnrýni. Eftir að lokatölur í Alþingiskosningunum höfðu verið kynntar var tekin ákvörðun um að telja að nýju og fljótlega kom í ljós að ekki hafði verið rétt talið. Við það duttu fimm þingmenn út miðað við áður kynntar tölur og fimm nýir hlutu kjör. …


























































Athugasemdir