Yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi sá ekki ástæðu til að láta umboðsmenn vita af „gæðatjékki“

Þórir Haraldsson, formaður yfir­kjör­stjórnar í Suður­kjördæmi, segist ekki hafa séð neina ástæðu til þess að láta umboðs­menn lista í kjör­dæminu vita af því að framkvæmt yrði „gæðatjékk“ á vinnu­brögðum yfir­kjör­stjórnarinnar sem meðal annars fól það í sér að fara aftur yfir atkvæðin.

Þórir Haraldsson, formaður yfir­kjör­stjórnar Suður­kjördæmis, segir enga ástæðu hafa verið til þess að láta umboðs­menn lista í kjör­dæminu vita að framkvæmt yrði „gæðatjékk,“ á vinnu­brögðum yfir­kjör­stjórnarinnar sem meðal annars fól í sér að fara yfir atkvæði aftur. 

Nú hefur yfir­kjörstjórn tilkynnt að ráðist verði í endur­talningu í yfir­kjörstjórn.

Yfirkjörstjórnin ber ábyrgð

Þórir segir að hver yfir­kjörstjórn beri ábyrgð á atkvæða­seðlum og „sínum tölum og talningu“. „Þarna voru komnar umræður um að það væri lítill munur og við tókum fullt mark á þeim umræðum og þess vegna fórum við í tjékk á okkar vinnu­brögðum,“ segir hann. 

Athugunin fór þannig fram að sögn Þóris að tekið var úrtak úr „bunka“ sem tilheyrði hverjum flokki fyrir sig. „Atkvæða­seðlar eru í bunkum og á bunkunum er merkt hvaða flokki atkvæðin eru greidd og þau flokkuð eftir framboðs­listum(...) Það var tekið úrtak úr öllum þessum flokkum, frá öllum framboðs­listum, úr öllum talningum, bæði utan­kjörfundar og kjörfundar­atkvæðum og farið var yfir það hvort flokkun væri rétt. Það var rétt í öllum tilvikum,“ segir Þórir. 

Umboðsmenn vissu ekki af athuguninni

Þórir metur sem svo að umboðs­menn lista í kjör­dæminu þurfi ekki að vera viðstaddir þegar slík athugun fer fram eða látnir vita að fyrir­hugaðri athugun. „Þeir vissu af því að yfir­kjörstjórn myndi funda klukkan eitt í gær til þess að ganga frá atkvæðum,“ segir hann. 

Hann segir þó að umboðs­mennirnir hafi ekki verið látnir vita að slík athugun myndi eiga sér stað á fundinum.

Hefði ekki verið betra að láta þá vita að þessi athugun myndi fara fram?

„Ég sé enga ástæðu til þess.“

Píratar gera athugasemd við athugunina

Í yfir­lýsingu sem Álfheiður Eymars­dóttir, oddiviti Pírata í Suður­kjördæmi, sendi frá sér í gær, segir hún Pírata ekki telja að „gæðatékk samræmist kosninga­lögum“. „Hvað þá gæðatjékk þar sem umboðs­menn eru ekki látnir vita eða eru viðstaddir.“

Kristín Edwald, formaður Lands­kjör­stjórnar, segir í samtali við Stundina að almennt sé mjög mikilvægt fyrir traust og trúverðug­leika kosninga að talið sé  „fyrir opnum tjöldum“, að umboðs­menn séu viðstaddir og að ferlið sé allt gagnsætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár