Hryðjuverkamenn fyrir rétti

Í París eru að hefj­ast umfangs­mestu rétt­ar­höld sem þar hafa verið haldin, vegna fjöldamorð­anna í nóv­em­ber 2015. Árás­ar­menn­irnir eru flestir látnir eða utan seil­ingar og lög­maður höf­uð­sak­borgn­ings­ins segir hann vera með vits­muna­líf á við ösku­bakka.

Hryðjuverkamenn fyrir rétti

Nú eru að hefj­ast í París umfangs­mestu rétt­ar­höld sem þar hafa verið haldin og menn hika ekki við að kalla sögu­leg: Rétt­ar­höldin yfir þeim sem frömdu fjöldamorðin í tón­leika­salnum Bataclan og víðar í París 13. nóv­em­ber 2015, þegar 130 manns létu lífið. Það eru mestu hryðju­verk sem framin hafa verið í borg­inni, síðan á Bartóló­meus­ar­mess­unni á 16. öld.

Fjórtán menn koma fyrir rétt, meðal þeirra er Salah Abdeslam, sá eini sem nú er á lífi af hryðju­verka­mönn­unum sjálfum, aðrir eru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í að und­ir­búa fjöldamorðin og veitt morð­ingja­sveit­inni aðstoð á ýmsan hátt. Að auki eru sex sak­born­ingar fjar­ver­andi, einn situr í stein­inum í Tyrk­landi, til ann­arra hefur spurst í Sýrlandi en þeir eru nú senni­lega látnir.

Rétt­ar­höldin fara fram í gömlu dóm­höll­inni á eynni úti í Signu – L’île de la Cité – og til alls öryggis hefur verið byggður vel var­inn dóm­salur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár