530. spurningaþraut: Spurningar um Suður-Ameríku

530. spurningaþraut: Spurningar um Suður-Ameríku

Allar spurn­ingar þessa októ­ber-dags fjalla um Suður-Ameríku með einum eða öðrum hætti.

Fyrri mynda­spurn­ing:

Rit­höf­und­ur­inn hér að ofan er frá Suður-Ameríku. Annars væri varla spurt um hana hér og nú. En hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ríki í Suður-Ameríku til­heyra Galapa­gos-eyjar?

2.  Í hvaða ríki var Ata­hu­alpa kon­ungur?

3.  Allir vita að Brasilía er stærsta ríki Suður-Ameríku að flat­ar­máli. En hvaða ríki er næst stærst?

4.  Og þá á sama hátt — hvað er þriðja stærsta ríki álf­unnar?

5.  Kona nokkur átti eig­in­mann sem varð for­seti í heima­landi þeirra en hún þótti ekki síður áhrifa­mikil en hann. Hún dó ung og var syrgð ákaf­lega í land­inu, en seinna var sam­inn vin­sæll söng­leikur um ævi hennar. Hvað var hún kölluð?

6.  Hæsti foss í heimi, Sálto Angel, er í einu ríkja Suður-Ameríku. Það er að segja ...?

7.  Hvaða ríki Suður-Ameríku hafa unnið heims­meist­ara­tit­il­inn í fót­bolta karla? Svarið þarf að vera nákvæmt. Þið megið sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið vitið upp á hár hve OFT lið frá Suður-Ameríku hafa unnið heims­meist­ara­tit­il­inn?

8.  Hvað heitir fjall­garð­ur­inn sem liggur eftir Suður-Ameríku endi­langri?

9.  Ákveðinn tón­list­ar­stíll spratt upp í Brasilíu í byrjun 20. aldar. Þar blönd­uð­ust portú­gölsk og brasil­ísk þjóð­laga­hefð við ryþma afrískra íbúa og úr varð einkar dansvæn og mjúk tón­list. Hvað kall­ast hún? Athugið að vissu­lega kemur hér kannski fleira en eitt svar til greina, en ég er að spyrja um fræg­ustu og auð­þekkj­an­leg­ustu tón­list­ar­stefn­una sem þetta á við.

10.  Í Suður-Ameríku er ríki sem var eitt sinn nýlenda undir stjórn Breta. Árið 1667 var gerður samn­ingur þar sem Bretar létu nýlend­una af hendi við Hol­lend­inga, en fengu í stað smá­borg eina sem Hol­lend­ingar höfðu reist í Norður-Ameríku, og var sú borg síðan nefnd New York. En hvað heitir nýlendan í Suður-Ameríku sem Hol­lend­ingar fengu í stað­inn fyrir New York og er nú sjálf­stætt ríki?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða suður-amer­ískri borg er ljós­myndin hér að neðan tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ekvador.

2.  Ríki Inka, en það er líka leyfi­legt að segja Perú.

3.  Argent­ína.

4.  Perú.

5.  Evita. Landið er Argent­ína.

6.  Venes­ú­ela.

7.  Úrúgvæ, Brasilía og Argent­ína. Þau hafa unnið HM-gullið alls níu sinnum.

8.  And­es­fjöll.

9.  Samba.

10.  Súrínam.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni heitir Isabel Allende.

Borgin á neðri mynd­inni er Rio je Janeiro.

Ef þið hafið verið í vafa, þá átt­uði að þekkja borg­ina af hand­legg hinnar risa­stóru Jesú-styttu sem gnæfir yfir borg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár