528. spurningaþraut: Illa leikin hræ búhvala eftir ... hvað?

Fyrri auka­spurning:

Hvað heitir persónan hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Árið 2016 fékk bók eftir Arnar Má Arngrímsson unglinga­bóka­verðlaun Norður­landaráðs. Bók hans fjallaði um unglinginn Sölva. En hvað hét verðlauna­bókin: Sölvasaga ... hvað?

2.  Forsetinn í ríki einu var nýlega myrtur. Hvaða ríki var það?

3.  Hræ af búrhvölum finnast stundum í fjöru illa leikin eftir helstu óvini búrhvalsins í hafinu. Hvaða óvinir eru það? Eru það: A) Aðrir búrhvalir, — B) Háhyrningar, — C) Hákarlar, — D) Kafarar, — E) Kafbátar, — F) Ljóns­makka-marglyttur, —  G) Neta­dræsur, — H) Queeqeg, Tashtego, Daggoo og Fedallah, — I) Smokk­fiskar, — J) Risa-stingskötur.

4.  Hvar eru Ljósu­fjöll?

5.  En í hvaða á er Ljósafoss?

6.  Í hvaða ríki búa Bretónar flestir?

7.  Hver leik­stýrði kvik­myndinni Schindler's List?

8.  Hún heitir Stanhope og er rannsóknar­lögreglu­maður á norðan­verðu Englandi, gengur yfirleitt með ljótan hattkúf á höfði og keyrir Landrover. Hvað heitir hún að fornafni?

9.  Önnur ensk lögreglu­kona heitir Cassie Stewart og helgaði sig rann­sóknum á gömlum glæpa­málum í sjónvarps­seríunni Unforgotten. Hún andaðist hins vegar eftir ákeyrslu í síðustu seríunni. Hvað heitir leikkonan sem lék Cassie Stweart?

10.  Í hvaða landi er höfuð­borgin Belgrad?

***

Seinni auka­spurning:

Hvað heitir ungi pilturinn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  ... unglings. Bókin heitir sem sé: Sölvasaga unglings.

2.  Haíti.

3.  Smokk­fiskar.

4.  Á Snæfellsnesi. Á mótum Snæfellsness og Borgar­fjarðar er eiginlega rétt líka ef einhver vill.

5.  Í Soginu.

6.  Frakk­landi.

7.  Spielberg.

8.  Vera.

Vera Stanhope

9.  Nicola Walker.

10.  Serbíu.

***

Cassie Stewart (Nicola Walker)ásamt helsta sam­verka­manni sínum við lausn erf­iðra glæpa­mála

Svör við auka­spurningum:

Persónan á efri myndinni heitir Ali G. Leikarinn heitir eitthvað allt annað.

Ungi pilturinn á neðri myndinni heitir Barron Trump.

Þetta er nokkurra ára gömul mynd og hann hefur stækkað töluvert síðan hún var tekin.

Hér má hins vegar sjá hann með foreldrum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár