Að opinbera sál sína

Bjarni Snæbjörnsson fékk tauga­áfall þegar hann þurfti að horfast í augu við sárs­aukann og skömmina sem hann bar í æsku vegna kynhneigðar sinnar, en leik­verkið Góðan daginn, faggi byggir á bréfum og dagbókum hans frá því að hann var barn.

Sjálfs­ævisögu­legi heimilda­söng­leikurinn „Góðan daginn, Faggi“ er nú sýndur í kjallara Þjóð­leikhússins. Um einleik er að ræða og er það Bjarni Snæbjörnsson sem leikur í raun sjálfan sig en leikritið er byggt á dagbókum hans og bréfa­skriftum frá því hann var barn. „Hann byggir líka á hvernig ég hef gert upp ævi mína hingað til. Fókus­punkturinn er kannski aðallega að sættast við sjálfan sig eins og maður er og hvernig það var fyrir mig sem homma að alast upp í gagn­kynhneigðu samfélagi,“ segir Bjarni, sem er titlaður höfundur verksins og annar höfundur og leik­stjóri er Gréta Kristín Ómars­dóttir. Axel Ingi Árnason samdi tónlistina sem er byggður á söngleikja­hefðinni.

Skömm yfir kynhneigðinni

Bjarni talar um skömmina sem hann upplifði í mörg ár við að vera samkyn­hneigður. „Verkið fjallar líka um uppgjör við þessa skömm sem ég upplifði og tengist samfélaginu og er í undir­meðvitundinni; ég held að þetta gerist ósjálfrátt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár