506. spurningaþraut: Eina konan sem hefur fengið æðstu herorðu Bandaríkjanna

506. spurningaþraut: Eina konan sem hefur fengið æðstu herorðu Bandaríkjanna

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá Mary Edwards Walker. Hún er eina konan sem hefur hlotið æðstu her­manna­orðu Banda­ríkj­anna, Medal of Honor. Hún fékk orð­una fyrir frá­bæra frammi­stöðu sem her­læknir í til­tek­inni styrj­öld. Hvaða styrj­öld var það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað á Ingólfur Arnarson að hafa látið ráða því hvar hann sett­ist að til lang­frama á Íslandi?

2.  Oryza sativa er lat­neska fræði­heitið á einni mestu nytja­jurt heims­ins. Hún var fyrst nýtt í þágu manns­ins fyrir meira en 10.000 árum. Hvað kall­ast afurðir jurt­ar­innar á íslensku?

3.  Hversu löng er keppn­is­laug á virðu­legum sund­mótum eins og ólymp­íu­leik­unum?

4.  Í hve mörgum teg­undum sunds keppa ein­stak­lingar á ólymp­íu­mótum?

5.  Hvaða emb­ætti gegndi Jón Arason 1520-1550?

6.  Hver var fyrsta konan sem varð for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi?

7.  Hvað er hæsta eld­fjallið sem sést frá Reykja­vík?

8.  Talí­banar — hvað þýðir það orð?

9.  Hvað hét fyrsti mað­ur­inn sem skotið var út í geim­inn?

5.  Á Bret­landi hafa frá fornu fari búið Skotar, Veils­menn, Eng­lend­ingar og Írar. Sumir vilja þó líta svo á að fimmta þjóðin búi þar líka á afmörk­uðu svæði. Hvaða svæði á Bret­landi er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi glað­beitta kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hvar önd­veg­is­súlur hans kæmu að landi.

2.  Hrís­grjón.

3.  50 metrar.

4.  Fjórar (skrið­sund, bringu­bak, baksund, flugsynd). Dýfingar geta ekki talist sund, trúi ég.

5.  Biskup á Hólum.

6.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

7.  Snæ­fells­jök­ull.

8.  Námsmenn. Fyrst og fremst er átt við náms­menn í trú­ar­legum fræðum, en náms­menn eitt og sér dugar.

9.  Gagarín.

10.  Cornwall.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Walker fékk orð­una (sem hún gekk með til ævi­loka) fyrir frammi­stöðu sína í banda­rísku borg­ara­styrj­öld­inni.

Á neðri mynd­inni er Lady Gaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár