505. spurningaþraut: Hver heldur upp á 32 ára afmælið sitt í dag?

505. spurningaþraut: Hver heldur upp á 32 ára afmælið sitt í dag?

Fyrri auka­spurn­ing:

Stóllinn á mynd­inni hér að ofan er tákn fyrir sjón­varps­þátt einn sem fengið hefur við stöðugar vin­sældir í Bret­landi í tæp 50 ár og reyndar í mörgum öðrum löndum líka. Íslensk útgáfa var reynd fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ungi en fest­ist ekki í sessi. Hvað kall­ast þátt­ur­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á árunum fyrir 2000 lét fót­bolta­fé­lagið Leiftur heil­mikið að sér kveða í efstu deild í karla­fót­bolt­anum á Íslandi. Heil­mik­ill völlur var á Leift­urs­mönnum, Bras­il­íu­menn ráðnir til starfa og svona. En frá hvaða sveit­ar­fé­lagi var Leiftur?

2.  Dýra­teg­und ein er líka nefnd leiftur. Ekki er hægt að segja að leiftur búi á Íslandi en teg­undin þekkir þó vel til hér um slóðir. Hvers konar dýr er leiftur?

3.  Hver var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins 1973-1983?

4.  Í dag heldur upp á 32 ára afmælið sitt þýskur fót­bolta­maður sem hefur hlotið fleiri verð­launa­gripi og medal­íur en nokkur Þjóð­verji annar — eftir því sem ég best veit. Hann spilar sem sókn­ar­maður fyrir Bayern München og þýska lands­liðið og bæði á HM 2010 og HM 2014 skor­aði hann fimm mörk. Hvað heitir hann?

5.  Júlíana Sveins­dóttir fædd­ist 1889 og lést 1966. Hvað fékkst hún við um ævina?

6.  Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir verður í efsta sæti fram­boðs­lista Pírata í hvaða kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum?

7.  Í Landnámu segir frá komu hins norska Flóka Vil­gerð­ar­sonar á skipi til Íslands. Með honum á skipi var meðal ann­ars maður frá Suð­ur­eyjum. Þeir Flóki sigldu fyrir fjarð­ar­mynni eitt breitt og mikið, en Suð­ur­ey­ing­ur­inn sagði: „Þetta mun vera mikið land, er vér höfum fundið; hér eru vatns­föll stór.“ Fjörð­ur­inn mikli var síðan nefndur eftir mann­inum sem hélt að um árós væri að ræða. Hvað hét mað­ur­inn frá Suð­ur­eyjum?

8.  Hver var Lara Croft?

9.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar?

10.  Árið 1948 hófst svokölluð loft­brú til ákveð­innar borgar í Evrópu. Borgin stóð ein­angruð á hálf­gerðu óvina­svæði og loft­brú flutn­inga­véla var ætlað að koma vistum til borg­ar­búa þar sem sam­göngur á landi höfðu verið að mestu stöðv­aðar. Loft­brúin stóð í tæpt ár. Hvaða borg var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir sundið sem sjá má hér að neðan?

***

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ólafs­firði. Athugið að Fjalla­byggð var ekki til þá.

2.  Leiftur er höfr­unga­teg­und en það dugar að segja hvalur.

3.  Geir Hall­gríms­son.

4.  Thomas Müller.

Thomas Müller,hinn víðkunni „Raum­deuter“ Bayern.

5.  Myndlist, textíl.

6.  Hún býður sig fram í Kraganum eða Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

7.  Faxi.

8.  Tölvu­leikja­per­sóna. Reyndar færði hún svo út kví­arnar í bíó­myndir um tíma.

9.  Löfven.

10.  Berlín.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er stóll­inn sem kepp­endur í spurn­inga­þætt­inum Masterm­ind sitja í.

Á neðri mynd­inni má sjá Eyr­ar­sund.

***

Hlekkir

á

fyrri

þraut

eru

hér

að

neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár