504. spurningaþraut: Um hvaða konu er sögð óttaleg kjaftasaga um hest?

504. spurningaþraut: Um hvaða konu er sögð óttaleg kjaftasaga um hest?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvern má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 2015 lét Haraldur Briem af til­teknu emb­ætti enda orð­inn sjö­tugur. Haraldur hafði gegnt þessu starfi í 18 ár. Hvað hét eft­ir­maður Haraldar í starfi?

2.  Árið 1972 gerðu þrír hryðju­verka­menn vél­byssu­árás á far­þega og starfs­fólk á flug­velli einum í Ísrael. Þeir drápu 26 manns og særðu nærri 100. Árásin var gerð í nafni palest­ínskra hryðju­verka­sam­taka en árás­ar­menn­irnir þrír komu frá allt öðrum sam­tökum og allt öðru landi. Hvaðan komu þeir?

3.  „Wombat“ kall­ast dýr eitt en af því eru reyndar til nokkrar teg­undir. Á íslensku er „wombat“ nefnt „vambi“. Sér­kenni­legt er að vambar búa upp­runa­lega aðeins í einu landi heims­ins. Hvaða land er það?

4.  Hver sagði af sér ráð­herra­emb­ætti á Íslandi árið 2014?

5.  Hvað heitir sú forna trjá­kvoða sem þykir mikið ger­semi og er meðal ann­ars kunn fyrir að geyma millj­óna­tuga gömul skor­dýr?

6.  Fyrir fáeinum vikum lést fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins en hann hafði gegnt starf­inu sam­fleytt 1972-2008. Hvað hét hann?

7.  Þessi rit­stjóri átti náið og gott sam­starf við annan rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins sem lét af störfum 2001. Sá hefur mörg járn í eld­inum og er afkasta­mikið og virt ljóð­skáld. Hvað heitir hann?

8.  Hver fékk Ósk­arsverð­laun sem besta leik­konan í aðal­hlut­verki árið 1991 fyrir að túlka unga metn­að­ar­gjarna FBI-lög­reglu­konu?

9.  Hver er næst fjöl­menn­asti þétt­býl­is­staður á Íslandi á eftir höf­uð­borg­inni Reykja­vík?

10.  Skelfi­leg kjafta­saga um eina mikla valda­konu á 18. öld hermir að hún hafi verið svo kyn­ferð­is­lega áhuga­söm að hún hafi meðal ann­ars átt mök við hest, og jafn­vel að hún hafi dáið við þær aðfarir. Þetta er tóm vit­leysa, en hvaða kona var aðal­per­sónan í þess­ari slúð­ur­sögu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fána má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þórólfur Guðnason.

2.  Þre­menn­ing­arnir voru jap­anskir.

3.  Ástralía. Vambar eru poka­dýr.

4.  Hanna Birna.

5.  Raf.

6.  Styrmir Gunn­ars­son.

7.  Matthías Johann­es­sen.

8.  Jodie Foster.

9.  Kópa­vogur.

10.  Katrín mikla.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Gandhí and­legan leið­toga Indverja framan af 20. öld.

Á neðri mynd­inni er fáni Írans.

***

Og hér enn neðar eru hlekkir á eldri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár