492. spurningaþraut: Ágúst er að ljúka, hér eru ýmsar spurningar um ágúst

492. spurningaþraut: Ágúst er að ljúka, hér eru ýmsar spurningar um ágúst

Nú er síð­asti dagur ágúst­mán­aðar, svo hér eru fáeinar spurn­ingar sem tengj­ast ágúst.

Karlinn hér að ofan hét Ágúst — þótt nafnið hafi verið staf­sett örlítið öðru­vísi í hans landi. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Eftir hverjum heitir ágúst ágúst?

2.  Á Alþingi situr nú einn Ágúst. Hvað heitir hann fullu nafni?

3.  Þann 2. ágúst 1939 fékk þáver­andi Banda­ríkja­for­seti bréf þar sem athygli hans var vakin á því að brátt yrði unnt að smíða miklu miklu öfl­ugri sprengjur en nokkru sinni fyrr, það er að segja kjarn­orku­sprengjur. Bréf­rit­ari sagði meðal ann­ars: „Ein ein­asta sprengja af þessu nýja tagi sem flutt yrði á skipi inn í höfn og sprengd þar gæti eyði­lagt alla höfn­ina og mest­allt hverfið þar í kring.“ Hver skrif­aði Banda­ríkja­for­seta þessa bréf?

4.  En hvað hét þessi Banda­ríkja­for­seti ann­ars?

5.  Þann 6. ágúst fimm árum eftir fyrr­nefnt bréf var slík sprengja sprengd yfir japönsku borg­inni Hírósjíma og olli gríð­ar­legri eyði­legg­ingu. Sprengjan var flutt yfir borg­ina með flug­vél sem kölluð var ...?

6.  Þann 6. ágúst 1965 voru felld úr gildi lög í Banda­ríkj­unum þar sem sagði að þeir einir fengju að kjósa sem gætu sannað að þeir kynnu að lesa, hefðu ákveðna þekk­ingu á þjóð­málum og hefðu „sið­ferð­is­styrk“ til að bera. Þessi gömlu lög höfðu verið notuð til að hindra svart fólk í að kjósa. Hvað hét for­set­inn sem lét fella þessa ósvinnu úr lögum?

7.  Á þessum degi — 31. ágúst — árið 1997 dó mann­eskja ein í bílslysi suður í París. Kannski dóu margir í bílslysi þar í borg á þeim degi, en þessi til­tekna mann­eskja er lang, lang­fræg­ust þeirra — það er óhætt að segja. Hver var þetta?

8.  Íslensk leik­kona, rit­höf­undur og tón­list­ar­maður á afmæli í dag. Fyrir rúmum 40 árum þýddi hún og las í útvarpið sögu sem vakti gríð­ar­lega athygli og jafn­vel hneykslun hjá sumum. Þessi saga nefnd­ist Upp­reisnin á ...? 

9.  En hvað heitir þýð­and­inn, sem reyndar er kunn fyrir marg­vís­leg rit­störf og músík fyrir börn?

10.  Í dag á líka afmæli Ingi­björg Stef­áns­dóttir sem flutti lag Íslands í Eurovi­son árið 1993. Lagið sem hún flutti lenti í 13. sæti og hét ... hvað? Lár­við­ar­stig er í boði ef veistu svarið við því hver samdi lagið.

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Á þessum degi fyrir réttum fimm árum — 31. ágúst 2016 — var konan á mynd­inni hér að neðan hrakin úr starfi sínu. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ágústusi Róm­ar­keis­ara.

2.  Ágúst Ólafur Ágústs­son.

3.  Einstein.

4.  Franklin D. Roosevelt.

5.  Enola Gay.

6.  Lyndon Johnson.

7.  Díana prinsessa.

8.  Barna­heim­il­inu.

9.  Olga Guðrún.

10.  Þá veistu svarið.

Jón Kjell Seljes­eth samdi lagið.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Augusto Pinochet ein­ræð­is­herra Tjíle.

Á neðri mynd­inni er Dilma Rousseff fyrrum for­seti Brasilíu. Nóg er að þekkja ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár