Traust á lögreglunni minnkar verulega hjá ungu fólki

Aðeins þrír af hverjum fimm lands­mönnum á aldr­inum 18 til 25 ára bera traust til lög­reglu. Þá styður aðeins ríf­lega helm­ingur fólks í sama ald­urs­hópi aðgerðir lög­reglu vegna Covid-19. Fjörutíu pró­sent lands­manna segja að upp geti komið aðstæður þar sem í lagi væri að fylgja ekki fyr­ir­mælum lög­reglu.

Traust á lögreglunni minnkar verulega hjá ungu fólki
Dregur úr trausti Almennt dregur úr trausti á störfum lög­reglu, einkum hjá yngri ald­urs­hópum. Mynd: Af Facebook-síðu lögreglunnar

Aðeins 59 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 25 ára ber traust til lög­reglu á Íslandi. Um veru­lega breyt­ingu er að ræða frá fyrri árum en árið 2018 kváð­ust 79 pró­sent þátt­tak­enda á sama aldri í könnun um störf lög­reglu bera traust til lög­regl­unnar. Traust til lög­reglu hefur einnig minnkað í ald­urs­hópnum 26 til 35 ára og í heild bera færri traust til lög­reglu nú en verið hefur und­an­farin ár.

Þetta er meðal nið­ur­staða í nýrri könnun Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands á við­horfum lands­manna til þjón­ustu og starfa lög­regl­unnar, sem unnin var fyrir emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Þrátt fyrir að traust á lög­reglu minnki frá fyrri árum ber yfir­gnæf­andi hluti lands­manna þó traust til starfa hennar. Þannig svara 80 pró­sent þátt­tak­enda því til að þeir séu ýmist mjög sam­mála eða frekar sam­mála því að þeir beri traust til lög­reglu og starfa hennar. Árið 2018 mæld­ist mest traust á störfum lög­reglu, 86 pró­sent en árið 2020 mæld­ist það 83 pró­sent.

Dregur úr trausti kvenna

Sem fyrr segir hefur traustið minnkað tölu­vert í yngsta ald­urs­hópnum. Árið 2020 sögðu 71 pró­sent þátt­tak­enda á aldr­inum 18 til 25 ára að þeir treystu lög­regl­unni en eins og áður er sagt er það hlut­fall nú komið niður í 59 pró­sent. Þá segj­ast 70 pró­sent þátt­tak­enda í næsta ald­urs­hópi, 26 til 35 ára, bera traust til lög­reglu. Á síð­asta ári var hlut­fallið 76 pró­sent og árið 2018 var það 82 pró­sent.

Lítill munur er á trausti eldri ald­urs­hópa á störfum lög­reglu í nýju könn­un­inni frá þvi sem verið hefur. Þátt­tak­endur á aldr­inum 36 til 45 ára treysta lög­regl­unni í 83 pró­sent til­vika sem er heldur lægra en verið hefur síð­ustu þrjú ár á undan. Því sem nær sama hlut­fall ber nú traust til lög­reglu í ald­urs­hópnum 46 til 55 ára, alls 87 pró­sent þátt­tak­enda og hið sama má segja um ald­urs­hóp­inn 56 til 65 ára. Mest traust á störfum lög­reglu mælist í elsta ald­urs­hópnum en 90 pró­sent þátt­tak­enda á þeim aldri bera traust til lög­regl­unnar.

Talsvert hefur dregið úr trausti kvenna til lög­regl­unnar frá því sem verið hefur en 81 pró­sent aðspurðra kvenna sagð­ist treysta lög­regl­unni. Það hlut­fall var 89 pró­sent á síð­asta ári. Karlar í hópi þátt­tak­enda í könn­un­inni segj­ast treysta lög­regl­unni í 79 pró­sent til­vika, sem er sama hlut­fall og á síð­asta ári.

Traust eykst með menntun

Þá kemur í ljós að traust á störfum lög­reglu eykst með auk­inni menntun. Þannig treysta 85 pró­sent þátt­tak­enda í könn­un­inni sem hafa háskóla­menntun að baki lög­reglu. Hlut­fallið meðal þeirra sem hafa fram­halds­skóla­menntun er 80 pró­sent og hlut­fall þeirra sem aðeins hafa grunn­skóla­próf og treysta lög­regl­unni er 75 pró­sent. Líkur má leiða að því að aldur hafi þar áhrif, enda er fólk sem hefur lokið háskóla­prófi að jafn­aði eldra en það sem aðeins hefur lokið grunn­skóla­prófi.

All mis­mun­andi er hversu mikið traust er á störfum lög­reglu eftir búsetu þátt­tak­enda. Þannig bera íbúar á Suð­ur­landi, Vest­ur­landi og Vest­fjörðum mest traust til lög­regl­unnar, á bil­inu 90 til 92 pró­sent þátt­tak­enda af þeim land­svæðum segj­ast treysta lög­regl­unni. Fæstir segj­ast treysta lög­reglu í Vest­manna­eyjum, 75 pró­sent þátt­tak­enda, og ríf­lega 77 pró­sent þátt­tak­enda á Norð­ur­landi vestra og Höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hins vegar kemur í ljós að um 84 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni telja bæði að lög­reglan sé almennt heið­ar­leg og að hún vinni í þágu almenn­ings.

Tveir af hverjum fimm segja í lagi að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu

Í rann­sókn­inni var einnig kannað við­horf almenn­ings til lög­mætis lög­reglu sem yfir­valds. Þar kemur í ljós að 85 pró­sent þátt­tak­enda töldu að lög­regla væri lög­mætt yfir­vald og fylgja skuli fyr­ir­mælum hennar. Hins vegar telja aðeins 65 pró­sent að skil­yrð­is­laust skuli virða ákvarð­anir lög­reglu, jafn­vel þó fólk telji þær rangar. Hlutfall þeirra sem sögð­ust þeirri full­yrð­ingu ósam­mála var 18 pró­sent. Enn fleiri eru þeirrar skoð­unar að þær aðstæður gætu komið upp að í lagi væri að fylgja ekki fyr­ir­mælum lög­reglu en alls 40 pró­sent þátt­tak­enda töldu að svo væri. Þeir sem svör­uðu þeirri spurn­ingu eru fleiri en þeir sem telja að svo sé ekki en 36 pró­sent aðspurðra töldu að slíkar aðstæður gætu aldrei komið upp.

Í rann­sókn­inni var jafn­framt spurt um stuðn­ing við aðgerðir lög­reglu við að fram­fylgja reglum og tak­mörk­unum vegna Covid-19. Í ljós kom að stuðn­ingur við þær aðgerðir er almennt mik­ill, en hefur þó farið minnk­andi frá fyrra ári. Alls 81 pró­sent sögð­ust styðja aðgerðir lög­reglu heils­hugar en árið 2020 var hlut­fallið 89 pró­sent. Minnstur er stuðn­ing­ur­inn í yngsta ald­urs­hópnum en aðeins 56 pró­sent þátt­tak­enda á aldr­inum 18 til 25 ára styður aðgerðir lög­reglu. Í næsta ald­urs­hópi er hlut­fallið 68 pró­sent og á bil­inu 83 til 88 pró­sent hjá fólki eldra en 36 ára.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár