Móðir fékk dæmt meðlag þrátt fyrir jafna umgengni

„Hér græddu lög­fræð­ingar, eng­inn annar,“ segir Bryndís Rán Birg­is­dóttir, kona Boga Hall­gríms­sonar. Hér­aðs­dómur stað­festi að hann þyrfti að greiða barns­móður sinni með­lag aftur í tím­ann, þrátt fyrir sam­eig­in­lega for­sjá með barn­inu frá 2013.

Móðir fékk dæmt meðlag þrátt fyrir jafna umgengni
Bryndís Rán Birg­is­dóttir og Bogi Hall­gríms­son Bogi þarf að greiða með­lag frá árinu 2016 þrátt fyrir jafna umgengni.

Hér­aðs­dómur hefur úrskurðað að faðir þurfi að greiða barns­móður sinni með­lag aftur í tím­ann, þrátt fyrir að barn þeirra hafi verið í sam­eig­in­legri for­sjá þeirra beggja frá árinu 2013. Sam­komu­lag um með­lags­greiðslur frá þeim tíma standi, þrátt fyrir munn­legt sam­komu­lag for­eldr­anna um jafna umgengni síðan þá og sann­an­legar greiðslur föð­ur­ins vegna fram­færslu barns­ins.

Bryndís Rán Birg­is­dóttir, kona föð­ur­ins, Boga Hall­gríms­sonar, greinir frá þessu í færslu á Facebook í dag. „Það er ekk­ert í kerf­inu sem grípur fólk í okkar stöðu, hvergi á leið­inni er eitt­hvað sem stoppar af þetta órétt­læti,“ skrifar hún. „Alls staðar löbbuðum við á veggi og svörin sem við fengum yfir­leitt á þá leið að svona eru jú bara lögin. Skiptir þá engu sú aug­ljósa stað­reynd að barnið hafði allt frá sam­búð­ar­slitum verið í jafnri umgengni við móður og föður og öllum kostn­aði skipt á milli beggja for­eldra.“

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gerði fjár­nám hjá Boga að kröfu barns­móð­ur­innar í nóv­em­ber á síð­asta ári, en þá var enn sam­eig­in­leg for­sjá með barn­inu að sögn Bryn­dísar og Boga. Hér­aðs­dómur hefur nú úrskurðað að aðfar­ar­gerð sýslu­manns­ins verði breytt þannig að hann þurfi að greiða barns­móður sinni 884.975 krónur vegna gjald­fall­ins með­lag. Barns­móð­irin hafði krafið Boga um 3 millj­ónir en dóm­ur­inn taldi hluta af kröf­unni hafa fyrnst.

„Hún beið í 7 ár og krafði okkur þá um millj­ónir“

„Við höfum aldrei og munum lík­lega aldrei fá að vita af hverju barns­móð­irin lagði upp í þessa veg­ferð,“ skrifar Bryndís. „Aldrei hefur verið hægt að sýna fram á að við höfum ekki staðið við okkar skuld­bind­ingar, fyrir utan þá stað­reynd að Bogi hefur ekki greitt með­lag síðan þau skildu í árs­lok 2013. Vissu­lega er það satt en ekki af því að Bogi sveikst undan skyldum sínum, það var bara samið um annað fyr­ir­komu­lag. Barns­móð­irin hafði á hvaða tíma­punkti sem er frá því að sam­búða­slita­papp­írar voru und­ir­rit­aðir til að krefj­ast með­lags. En hún beið í 7 ár og krafði okkur þá um millj­ónir.“

Segir glufur í kerfinu misnotaðar

Bryndís segir málið vera það fyrsta sinnar teg­undar sem fer fyrir dóm­stóla á Íslandi. „Ég ætla ekki að stað­hæfa að aldrei áður hafi lög­heim­il­is­for­eldri farið þessa leið að rukka inn með­lag, lík­lega er fullt af fólki þarna úti sem hefur lent í svip­aðri stöðu og þá ann­að­hvort greitt þegj­andi og hljóða­laust eða orðið gjald­þrota. Ofbeldi lög­heim­il­is­for­eldris er löngu orðið þekkt í okkar sam­fé­lagi og birt­ing­ar­myndin oft­ast tálmun og/eða fjár­kúgun. Á meðan þessar glufur eru í kerf­inu þá mun alltaf vera til fólk sem not­færir sér það sem er ekk­ert annað að mis­notkun á lög­unum. Réttast væri að þessi mis­notkun væri refsi­verð en í stað­inn sam­þykkir kerfið það. Er ekki löngu orðið tíma­bært að stöðva þessa teg­und af ofbeldi?“ skrifar hún.

„Hér græddu lög­fræð­ingar, eng­inn annar“

Hún segir það mik­inn létti að þau hafi ekki þurft að greiða 3 millj­ónir eins og upp­haf­lega krafan var, heldur lægri upp­hæð. Við hana bæt­ist svo lög­fræði­kostn­aður, sem báðir deilu­að­ilar þurfa að greiða. „Hér græddu lög­fræð­ingar, eng­inn annar,“ skrifar Bryndís. „Í hinum full­komna heimi hefði málið verið látið niður falla, enda galið í alla staði. En við vissum áður en út í þetta var farið að það væri borin von, enda lögin ekki með okkur. Þessir pen­ingar eiga vissu­lega að fara til barns­ins en við munum lík­lega aldrei vita hvort þeir ein­hvern tím­ann röt­uðu þangað.“

„Ætli þetta hafi allt verið þess virði?“

Bryndís segir að dag­inn eftir að dóm­ur­inn féll í maí hafi þeim borist bréf frá sýslu­manni þar sem kröfum barns­móð­ur­innar um tvö­falt með­lag ár aftur í tím­ann hafi verið hafnað. „Ætli þetta hafi allt verið þess virði? Allur skað­inn sem þetta hefur valdið til langs tíma, sál­ar­líf allra sem búið er að setja á útsölu fyrir ein­hverjar krónur?“

Atlaga að heimili og fjölskyldulífi

„Við erum sátt með þá lend­ingu sem málið okkar fékk og göngum sátt frá borði,“ skrifar Bryndís. „Atlaga var gerð að heim­ili okkar og fjöl­skyldu­lífi. Við tókum ákvörðun að sam­þykkja ekki þetta ofbeldi og fara með þetta fyrir dóm­stóla. Við stöndum upp­rétt og sterk­ari sem aldrei fyrr. Við erum við­búin næstu árásum eins og við höfum verið síð­asta árið.“

Loks vill hún þakka öllum þeim sem létu sig málið varða, en hún hafði áður skrifað um það á Facebook. „Þetta mál nefn­in­lega snertir ekki bara okkur, heldur ótal aðra sem lenda í ósann­gjörnum með­lagsinn­heimtum,“ skrifar Bryndís að lokum. „Við erum ekki þau fyrstu og ekki þau síð­ustu sem berj­umst með kerfið á móti okkur. Takk fyrir allan ykkar stuðn­ing, fal­legu skila­boðin, sím­tölin og heim­sókn­irnar. Þetta skipti okkur allt miklu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár