Konurnar að baki Öfgum stíga fram: „Við ætlum að fella feðraveldið“

Hulda Hrund Sig­munds­dóttir og Tanja Ísfjörð eru með­limir í fem­iníska TikTok-hópnum Öfgar, sem vakti athygli fyrir að deila frá­sögnum 32 kvenna af sama tón­list­ar­mann­inum, sem var í kjöl­farið afbók­aður í gigg á Þjóð­há­tíð. Maðurinn sem um ræðir, Ingólfur Þór­ar­ins­son, hefur hafnað þessum ásök­unum og hótað mál­sókn.

Konurnar að baki Öfgum stíga fram: „Við ætlum að fella feðraveldið“
Öfgar Konurnar á bak við umdeildan TikTok reikn­ing sem afhjúpaði frá­sagnir af tón­list­ar­manni sam­ein­ast í bar­áttu fyrir betra sam­fé­lagi. Hér eru þær Helga, Hulda og Bryn­hildur. Mynd: Heida Helgadottir

Tiktok-hóp­ur­inn Öfgar sprettur upp úr umræðu um þörf­ina á femínískri nálgun á sam­fé­lags­miðlum, sam­anstendur af átta konum á mis­mun­andi aldri og með ólíkan bak­grunn sem ætl­uðu að taka sig saman um að fræða fólk um femín­isma, meðal ann­ars með léttu gríni. Fyr­ir­fram hafði hóp­ur­inn ekki séð fyrir sér að nýta þetta svæði sem vett­vang fyrir frá­sagnir af hátt­semi ein­stakra manna, en þegar fjöldi frá­sagna barst af sama mann­inum taldi hóp­ur­inn sig knú­inn til þess að bregð­ast við.

Ekkert svar frá þjóðhátíðarnefnd

Helga Bene­dikts­dóttir„Ég varð femínisti árið 2016 eftir að ég opn­aði mig um nauðgun og þáver­andi vin­kona mín trúði mér ekki því ég svaf hjá svo mörgum eftir að mér var nauðgað. Það opn­aði augun mín fyrir því hversu mikið ójafn­vægi er í sam­fé­lag­inu og hvað fólk er litað af feðra­veld­inu. Ég vil berj­ast fyrir jafn­rétti og fella feðra­veldið.“
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár