Stærstur hluti styrkja til FÍFL fer í laun og rekstur lögregluforlags

Að baki umdeildrar fíkni­efna­aug­lýs­ingar sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í síð­ustu viku stendur Íslenska lög­reglu­for­lagið en fyr­ir­tækið tekur að sér að safna og inn­heimta styrki fyrir hönd Félags íslenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna. Af þeim styrkjum sem for­lagið safn­aði fór aðeins minni­hluti af þeim í þann mál­stað sem safnað var fyrir.

Stærstur hluti styrkja til FÍFL fer í laun og rekstur lögregluforlags
Lög­reglu­for­lagið græðir á aug­lýs­ingum Óskar Bjartmarz segir launa­kostnað for­lags­ins ekki mik­inn þrátt fyrir að árs­reikn­ingar félags­ins segi annað. Mynd: RÚV

Innan við helm­ingur þess sem safn­ast hefur fyrir Félag íslenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna, eða FÍFL, og tvenn önnur sam­tök lög­reglu­manna rennur sem styrkur til þess­ara félaga. Um það bil tíu millj­ónir fara í launa­kostnað starfs­manna útgáfu­fé­lags­ins sem tekur að sér fjár­söfn­un­ina. Þetta stað­festir Óskar Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri Íslenska lög­reglu­for­lags­ins og fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn.

Aug­lýs­ing félags­ins sem birt­ist í Morg­un­blað­inu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag hefur vakið athygli. Ekki síst þeirra sem skrif­aðir voru stuðn­ings­að­ilar skila­boð­anna sem í henni birt­ust, sem beindust gegn kanna­bis­neyslu. Bæði Blaða­manna­fé­lag Íslands og Rauði kross­inn hafa gert athuga­semdir við aug­lýs­ing­una og hvernig að henni var staðið en for­maður blaða­manna­fé­lags­ins segir í sam­tali við Vísi að Félag íslenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna hafi blekkt blaða­menn til þátt­töku í „umdeildri fíkni­efna aug­lýs­ingu“. Rauði Krossinn segir FÍFL hafa notað nafn Rauða Krossins á Íslandi án sam­þykkis. 

Aug­lýs­ingin umdeilda

„Fólk sem tekur þátt í aug­lýs­ing­unni er að styrkja skila­boðin og styrkja Félag …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár