Eimskipsmenn enn til rannsóknar eftir sátt og milljarðasekt

Rannsókn yfir­valda á lög­brotum Eimskips er enn í gangi jafn­vel þó að fyr­ir­tækið hafi gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Mál starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið á borði hér­aðs­sak­sókn­ara og fyr­ir­renn­ara síðan árið 2014. Samskip svarar engu um sína hlið máls­ins.

Eimskipsmenn enn til rannsóknar eftir sátt og milljarðasekt
Sektað Eim­skipa­fé­lag Íslands sem sam­þykkt hefur að greiða 1.500 millj­ónir í rík­is­sjóð vegna sam­keppn­islaga­brota.

Starfs­menn Eimskips sem kærðir voru til lög­reglu vegna sam­keppn­islaga­brota árið 2014 eru enn til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Fyr­ir­tæki við­ur­kenndi í síð­ustu viku sam­keppn­islaga­brot og gerði sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið vegna þeirra sem felur í sér 1.500 millj­óna króna sekt­ar­greiðslu. 

„Við höfum mót­tekið upp­lýs­ingar frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna umræddrar sáttar og erum með þær upp­lýs­ingar til skoð­unar.“
Ólafur Þór Hauksson
hér­aðs­sak­sókn­ari

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi í kjöl­far sátt­ar­innar upp­lýs­ingar um hana til hér­aðs­sak­sókn­ara, sem stað­festir að gögn tengd henni séu nú til skoð­unar. „Við höfum mót­tekið upp­lýs­ingar frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna umræddrar sáttar og erum með þær upp­lýs­ingar til skoð­unar,“ segir Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hófst með hús­leit árið 2013 hjá bæði Eim­skipa­fé­lag­inu og Sam­skipum, vegna gruns um ólög­legt sam­ráð fyr­ir­tækj­anna. Ári síðar voru ell­efu starfs­menn félag­anna tveggja kærðir til lög­reglu vegna brot­anna. For­svars­menn beggja félaga hafa neitað öllu ólög­legu allar götur síðan - þar til í síð­ustu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár