Pólverjum á Íslandi fækkar

Lands­menn eru nú í fyrsta sinn orðnir fleiri en 370 þús­und. Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði á síð­ustu sex mán­uðum en fækkun varð í fjöl­menn­ustu hópum þeirra. Þetta sýna nýjar tölur Þjóð­skrár.

Pólverjum á Íslandi fækkar
Mann­fjöld­inn yfir 370 þús­und Lands­mönnum fjölg­aði um ríf­lega tvö þús­und síð­ustu sex mán­uði. Mynd: Shutterstock

Pólskum rík­is­borg­urum búsettum á Íslandi fækk­aði um 1,5 pró­sent á síð­ustu sex mán­uðum. Á sama tíma fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum með skráða búsetu hér á landi um hálft pró­sent. Íbú­fjöldi á Íslandi er nú kom­inn yfir 370 þús­und í fyrsta sinn. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár.

Alls voru 51.623 erlendir rík­is­borg­arar skráðir með búseu hér á landi 1. júní síð­ast­lið­inn og fjölg­aði þeim um 245 frá 1. des­em­ber 2020. Enn sem áður eru pólskir rík­is­borg­arar lang­fjöl­menn­asti hóp­ur­inn en 20.560 Pól­verjar voru búsettir hér á landi 1. júní síð­ast­lið­inn. Hafði þeim þó fækkað um 309 frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum. Næst fjöl­menn­asti hópur erlendra rík­is­borg­ara hér á landi eru Litháar, alls 4.582 og fækk­aði þeim um 45 á sama tíma­bili. Rúmenar eru þriðji fjöl­menn­asti hóp­ur­inn, 2.334 tals­ins, og fjölg­aði þeim um 96.

Alls búa hér á landi rík­is­borg­arar 148 ríkja. Á síð­ustu sex mán­uðum hefur fjölgað tals­vert í hópi Þjóð­verja, Banda­ríkja­manna og Frakka hér á landi. Þjóð­verjum fjölg­aði um 66 tals­ins, Banda­ríkja­mönnum um 74 og Frökkum um 72. Af öðrum þjóð­ernum má nefna að Palest­ínu­mönnum hér á landi fjölg­aði um 47 og eru þeir nú 126. Þá hefur ind­verskum rík­is­borg­urum fjölgað um 41 og eru þeir nú 231 tals­ins. Rík­is­fangs­lausum ein­stak­lingum með búsetu hér á landi fækk­aði um fjóra á tíma­bil­inu og eru nú 43 rík­is­fangs­lausir ein­stak­lingar búsettir hér.

Íslenskum rík­is­borg­urum fjölg­aði á sama tíma­bili um 1.814 og er nú 319.056 tals­ins. Alls fjölg­aði fólki á Íslandi því um 2.059 og eru nú 370.679 búsettir hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár