Nýgengi krabbameins mest á Suðurnesjum – þingmenn vilja rannsókn

Nýgengi krabba­meina á Suð­ur­nesjum er hærra en bæði lands­með­al­tal og hærra en nýgengi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Nýgengi krabbameins mest á Suðurnesjum – þingmenn vilja rannsókn
Vilja rann­sókn Þingmenn vilja að rann­sakað verði hví nýgengi krabba­meins sé hæst í Reykja­nesbæ. Í þeim til­gangi verði meðal ann­ars farið yfir mengun á flug­vall­ar­svæð­inu.

Samkvæmt könnun Rann­sókna- og skrán­ing­ar­set­urs Krabba­meins­fé­lags Íslands er nýgengi krabba­meins hæst á Suð­ur­nesjum af land­inu öllu. Þingmenn Mið­flokks­ins auk eins þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að mögu­legar orsakir þessa verði rann­sak­aðar

Könnunin nær til ára­bils­ins 2009 til 2018 og þar kemur í ljós að að nýgengi krabba­meina hjá körlum er tals­vert hærra á Suð­ur­nesjum en lands­með­al­tal og sömu­leiðis hærra en nýgengi krabba­meina á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nýgengi krabba­meina hjá konum er lít­il­lega hærra á Suð­ur­nesjum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nokkuð hærra en að með­al­tali á land­inu öllu. Almennt er hæst nýgengi krabba­meina í höf­uð­borgum og stórum þétt­býl­is­stöðum.

Á umræddu ára­bili greindust ríf­lega 1.000 krabba­mein­stil­vik á Suð­ur­nesjum. Dreifing krabba­meina er svipuð og á lands­vísu en þó var áber­andi hátt nýgengi krabba­meina í lungum og í leg­hálsi. Samkvæmt lýð­heilsu­vísum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins er tíðni reyk­inga í Reykja­nesbæ hærri en ann­ars staðar á land­inu og þá er mæt­ing í skimun fyrir leg­hálskrabba­meini lak­ari þar en ann­ars staðar.

Þingmenn Mið­flokks­ins, ásamt Ásmundi Frið­riks­syni þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að heil­brigð­is­ráð­herra feli Rann­sókna- og skrán­ing­ar­setri Krabba­meins­fé­lags­ins að rann­saka nýgengi krabba­meina á Suð­ur­nesjum mið­aða við aðra lands­hluta auk þess sem tíðni þekktra áhættu­þátta verði könnuð. Þá verði skýrslur sem Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar hefur látið gera og varða mengun á flug­vall­ar­svæð­inu yfir­farnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár