Hættir eftir „stöðugt áreiti og ofsóknir“

Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, hefur óskað eftir til­færslu í starfi vegna árása Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa í sinn garð. Helga Björg seg­ist meðal ann­ars hafa orðið fyrir hót­unum um ofbeldi.

Hættir eftir „stöðugt áreiti og ofsóknir“
Hættir sem skrif­stofu­stjóri Helga Björg færir sig til innan borg­ar­kerf­is­ins og lýsir hót­unum um ofbeldi af hálfu borg­ar­full­trúa.

Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, hefur farið fram á til­færslu í starfi hjá Reykja­vík­ur­borg sem fall­ist hefur verið á. Helga Björg hefur ítrekað á síðustur þremur árum kvartað undan árásum Vigdísar Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, í sinn garð en segir að ekki hafi feng­ist nið­ur­staða í þau mál. Segir Helga Björg að meðal ann­ars hafi borg­ar­full­trúi haft uppi hót­anir um lík­ams­meið­ingar á lok­uðum fundum og að borg­ar­kerf­inu hafi mis­tek­ist að tryggja öryggi starfs­fólks.

Mikil tog­streita hefur ríkt milli Helgu Bjargar og Vigdísar síð­ast­liðin þrjú ár, allt frá því að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur felldi í júlí árið 2017 úr gildi áminn­ingu sem Helga Björg veitti und­ir­manni sínum. Í ágúst 2018 kvart­aði Helga Björg þannig fomelgar, í bréfi til for­sætis­nefndar borg­ar­innar, undan því að borg­ar­full­trúar hefðu farið fram með rang­færslur í umræðum á sam­fé­lags­miðlum um dóm­inn, og má ætla að þar hafi hún verið að vísa til Vigdísar. Í ágúst á síð­asta ári greindi Helga Björg frá því á Facebook-síðu sinni að hún hefði setið undir ítrek­uðum árásum af hálfu Vigdísar síðan þá, sem hefðu gróf­lega vegið að æru hennar og starfs­heiðri.

Forsagan löng

Í febr­úar 2019 skrif­aði Stefán Eiríks­son, þáver­andi borg­ar­rit­ari, bréf á Facebook-síðu Reykja­vík­ur­borgar þar sem hann gagn­rýnir fram­göngu fáeinna borg­ar­full­trúa mán­uð­ina á undan og sagði þá hafa „ítrekað vænt starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar um óheið­ar­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra“. Þó Stefán hafi ekki nafn­greint borg­ar­full­trú­ana sem um ræður dylst engum að hann var meðal ann­ars að fjalla um Vigdísi.

Vigdís sjálf hefur á und­an­förnum árum brugð­ist við mál­inu með ýmsum hætti á opin­berum vett­vangi og meðal ann­ars sendi hún Vinnu­eft­ir­lit­inu kvörtun í febr­úar á síð­asta ári vegna þess sem hún sagði að væri ein­elti og áreiti í sinn garð af hálfu Helgu Bjargar.

„Sömu­leiðis hefur því mis­tek­ist að tryggja með full­nægj­andi hætti öryggi starfs­fólks gagn­vart ofbeld­is­fullri fram­komu borg­ar­full­trúa jafn­vel með hót­unum um lík­ams­meið­ingar á lok­uðum fundum“

Í færslu á Facebook-síðu sinni í dag greinir Helga Björg frá því að hún hafi óskað eftir til­færslu í starfi og muni taka að sér störf í deild borg­ar­innar sem sinnir jafn­launa­málum. Þar með hverfi hún úr starfs­um­hverfi sem þar sem hún hafi sætt „stöð­ugu áreiti og ofsóknum af hálfu borg­ar­full­trúa“ og er þar að vísa til Vigdísar.

Helga Björg lýsir því einnig að hún hafi óskað eftir skoðun á því hvort fram­ferði Vigdísar hafi brotið í bága við siða­reglur kjör­inna full­trúa og einnig hvort að hegðun hennar félli undir skil­grein­ingu á ein­elti. „Þar sem borg­ar­full­trú­inn kom sér undan þátt­töku í rann­sóknum á fram­komu sinni hefur ekki feng­ist nið­ur­staða í málin. Úrræða­leysi kerf­is­ins í við­brögðum við erindum mínum olli mér miklum von­brigðum.“

Þá lýsir Helga Björg því einnig að hún hafi mátt sæta hót­unum um ofbeldi. „Sömu­leiðis hefur því mis­tek­ist að tryggja með full­nægj­andi hætti öryggi starfs­fólks gagn­vart ofbeld­is­fullri fram­komu borg­ar­full­trúa jafn­vel með hót­unum um lík­ams­meið­ingar á lok­uðum fundum. Það vekur upp áleitnar spurn­ingar um getu sveit­ar­fé­laga til að tryggja öruggt starfs­um­hverfi, t.a.m. í sam­ræmi við reglu­gerð 1009/2015 um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár