Maðurinn er í eðli sínu hópdýr, eins og ljónið. Þótt vissulega sé til afar einrænt fólk – rétt eins og ljónin á Indlandi eru einræn eins og tígrisdýr – þá vilja flestir tilheyra einhverjum hópi, því það er öryggi í því og við búum líka flestöll í brjóstinu yfir kærleika til okkar nánustu.
Þetta er ósköp eðlilegt undir flestum kringumstæðum.
Hvenær hópurinn okkar þróast yfir í það sem við köllum þjóð, það er annað mál og erfiðara viðfangs. Í helför síðari heimsstyrjaldar gerðist það oft, já, hræðilega oft, í smáþorpum einhvers staðar í Mið-Evrópu snerist fólk gegn nágrönnum sínum – fólki sem það hafði búið með alla sína ævi og deilt með kjörum á alla lund – og drap það.
Af því nágrannarnir voru Gyðingar.
Ekki þarf mikið til
Af því aðvífandi hernámslið úr Þýskalandi hafði gefið þessum Pólverjum, Litháum, Úkraínumönnum og Ungverjum …




















































Athugasemdir