Ætti fyrst og fremst að hlusta á hjartað

Felix Bergsson, sjón­varps­maður, útvarps­maður, leik­ari og tón­list­ar­maður, segir að ham­ingjan felist helst í því að manni líði vel. „Ég á miklar ham­ingju­stundir með börn­unum mínum og tengda­börnum þegar þau koma til okkar, sitja með okkur, ræða málin og borða góðan mat; þá fyllist ég mik­illi ham­ingju.“ Þá gefur hann ráð varð­andi það hvernig eigi að við­halda ham­ingj­unni.

Ætti fyrst og fremst að hlusta á hjartað
Felix og fjöl­skylda Hér er Felix Bergsson með hluta fjöl­skyld­unnar, þar sem þau búa við Starhaga.

„Ham­ingjan er að vera sáttur. Ham­ingjan er að geta sofið og vaknað glaður; það er helst það að manni líði bara vel og vakni glaður á morgn­ana til að takast á við þau verk­efni sem fram undan eru,“ segir Felix Bergsson.

Hann segir að helstu ham­ingju­stund­irnar í lífi sínu teng­ist fyrst og fremst fjöl­skyld­unni. „Ég á miklar ham­ingju­stundir með börn­unum mínum og tengda­börnum þegar þau koma til okkar, sitja með okkur, ræða málin og borða góðan mat; þá fyllist ég mik­illi ham­ingju. Og í seinni tíð veitir það mér mikla ham­ingju að leika við barna­börnin og finna tengslin sem eru að mynd­ast. Stundum tár­ast ég af ham­ingju þegar ég hugsa til þeirra. Það nægir mér.“

Felix og eig­in­maður hans, Baldur Þór­halls­son, eiga tvö upp­komin börn og tvö barna­börn.

„Svo á ég miklar ham­ingju­stundir með eig­in­mann­inum og þær geta verið mis­mun­andi. Oft og tíðum eigum við okkar ham­ingju­stundir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár