Aldrei endir

Jörðin snýst og á hverju ári er haldin sýn­ing nem­enda í meist­ara­námi í mynd­list úr Lista­há­skóla Íslands, í dag­legu tali kölluð MA-sýn­ingin.

Aldrei endir

Sýning meist­ara­nema í mynd­list er sann­ar­lega einn af vor­boð­unum ljúfu. Í ár er hún sett upp í Nýlista­safn­inu undir yfir­skrift­inni Aldrei endir og stendur frá 8.–30. maí. Sýnendur eru þau Auður Aðal­steins­dóttir, Brian Wyse, Helen Svava Helga­dóttir og Romain Causel. Sýn­ing­ar­stjóri er Sunna Ást­þórs­dóttir. „Ég hef notið þeirrar ánægju að stíga inn í ferlið sem sýn­ing­ar­stjóri. Við sýnendur höfum hist reglu­lega síðan í febr­úar ásamt Bjarka Braga­syni, fag­stjóra meist­ara­náms í mynd­list. Það hefur verið ein­stak­lega frjótt sam­tal, gef­andi og lær­dóms­ríkt fyrir mig og von­andi lista­menn­ina líka,“ segir Sunna. Þegar Hill­billy hafði sam­band voru útskrift­ar­nem­end­urnir að leggja loka­hönd á upp­setn­ingu en þau gáfu sér þó nokkrar mín­útur í Hill­billy, því hún er hún. Sýn­ing­ar­stjór­inn heldur vel utan um ferlið og svar­aði líka spurn­ingum Hill­billyar.

Í ár eru aðeins fjórir nem­endur sem sýna, sem er kannski heldur óvana­legt. „Jú, þau eru færri en vana­lega, hér eins og á svo mörgum öðrum sviðum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár