Fyrirtæki Róberts Wessman hafa sett um tvo milljarða króna í fjölmiðla

Fjár­festir­inn Róbert Wessman og félög hans lán­uðu Birni Inga Hrafns­syni og fjöl­miðlum hans meira en 1.200 millj­ónir króna í heild­ina á árunum 2012 til 2017. Eftir að Björn Ingi hvarf úr hlut­hafa­hópi Pressunnar árið 2017 setti Róbert um 700 millj­ónir króna inn í rekstur tíma­rita­út­gáf­unnar Birtings.

Fyrirtæki Róberts Wessman hafa  sett um tvo milljarða króna í fjölmiðla
Tveir millarðar í fjöl­miðla Fjár­festir­inn Róbert Wessmann og félög honum tengd settu sam­tals um 2 millj­arða króna inn í fjöl­miðla Björns Inga Hrafns­sonar og Birting á árunum 2012 til 2020. Mynd: Alvogen

Fyr­ir­tæki í eigu Róberts Wessman, fjár­festis og eins eig­enda og for­stjóra sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, hafa fjár­fest í fjöl­miðlum á Íslandi með beinum eða óbeinum hætti fyrir um tvo millj­arða króna á síð­ast­liðnum ára­tug. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Um er að ræða fjár­muni sem fyr­ir­tæki Róberts settu í fjöl­miðla sem Björn Ingi Hrafns­son, núver­andi eig­andi og rit­stjóri vef­síð­unnar Viljans, stýrði allt frá árinu 2012 og fjár­muni sem settir voru inn í tíma­rita­út­gáf­una Birting frá árinu 2017 til 2020.

Sam­skipta­stjóri Aztiq fjár­fest­ing­ar­fé­lags Róberts Wessmann, Lára Ómars­dóttir, segir í svari til Stund­ar­innar að sann­fær­ing­ar­kraftur Björns Inga Hrafns­sonar hafi ráðið miklu um það að Róbert setti svo mikið af fé í fjöl­miðla­rekstur hans. „Stutta svarið við spurn­ingum blaða­manns er að það var til­viljun ein sem réði því að Aztiq og tengdir aðilar eign­uð­ust í Press­unni og síðar Birtingi. Sölu­manns­hæfi­leikar og sann­fær­inga­kraftur eig­andi Pressunnar á þeim tíma skýrir hvers vegna Pressan fékk mikið fé að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár