Norræn samtök heimilislækna fordæma skrif heimilislæknis

Siða­nefnd Lækna­fé­lags Íslands hefur fengið ábend­ingar vegna niðr­andi ummæla Guð­mundar Páls­sonar heim­il­is­læknis á sam­fé­lags­miðlum er varðar bæði konur og aðila í minni­hluta­hópum. Lækna­fé­lagið tekur ekki afstöðu í ein­staka málum en sam­tök nor­rænna heim­il­is­lækna gera það hins vegar og hafa for­dæmt skrif Guð­mundar.

Norræn samtök heimilislækna fordæma skrif heimilislæknis
Guð­mundur Pálsson Heim­il­is­lækn­ir­inn Guð­mundur Pálsson segir lækna mega segja allt, þar á meðal þau niðr­andi ummæli sem Guð­mundur hefur látið falla á sam­fé­lags­miðlum í garð kvenna

Guð­mundur Pálsson, sér­fræð­ingur í heim­il­is­lækn­ingum og starf­andi heim­il­is­læknir á heilsu­gæslu Graf­ar­vogs, hefur tjáð sig með niðr­andi hætti um konur síð­ast­liðna daga á Facebook síðu sinni vegna þeirra umræðu sem hefur átt sér stað eftir að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis stigu fram og sögðu reynslu­sögur á sam­fé­lags­miðlum og hófu þar með nýja bylgju af Metoo. Raunar nær afstaða hans til þessa mála­flokks lengra aftur í tím­ann en ummæli hans í garð kvenna og minni­hluta­hópa ná yfir ein­hver ár.

Í sam­tali við Stundina segir Guð­mundur að læknar megi tala um allt „bara ekki sjúk­linga sína“ og þeir hafi fullan rétt til þess „eins og hver annar borg­ari“.  Stundin tal­aði einnig við konu sem ekki vill koma fram undir nafni en hún seg­ist hafa skipt um heilsu­gæslu meðal ann­ars vegna sam­skipta sinna við Guðmund, hún geti ekki treyst honum fyrir sér eða konum nálægt sér í ljósi slíkra ummæla. 

Lækna­fé­lag Íslands vill ekki taka afstöðu til ein­stakra mála þegar Stundin óskaði eftir við­brögðum þess við ummælum Guð­mundar. Jóhann Ágúst Sig­urðs­son, for­maður Samtaka Norrænna heim­il­is­lækna, for­dæmir hins vegar skrif Guð­mundar og segir þau stang­ast á við grunn­gildi heim­il­is­lækna. 

Feminismi er nornakult

„Femín­ism­inn er í raun norna­kult, það eru ekki margir sem átta sig á því. Og ekki að undra því hann felur sig og dylur sig og fer í margs konar bún­inga. Til að halda honum við er talað um jafn­rétti, fórn­ar­lömb og nauðg­un­ar­kúltúr og feðra­veldi. Alls ekki allar konur eru með á vagn­inum, það er mis­skiln­ingur, heldur aðeins von­brigða konur sem hafa orðið fyrir hnjaski ellegar treysta sér ekki í neitt sam­tal um neitt og vilja ráða öllu sjálfar - og beita valdi og stundum ósann­indum til að ná því fram. Þetta hefur smit­ast út í stjórn­málin okkar heldur betur. Þessu fylgja lygar og væn­i­sýki, fóst­ur­eyð­ingar, skiln­að­ar­á­róður, aðskiln­aðar hyggja (á milli kynj­anna, sem er orðið aðal­efni frétta) hefndar hyggja (oft hlegið ef kona hefnir sýn, talið rétt­mætt) og margt í þá átt­ina. Þetta er and­stætt krist­inni trú og góðum lífs­gildum, gegn fjöl­skyldu og börnum. Af hverju konur? Það er mjög erfitt að ,,lesa" þetta fyr­ir­bæri rétt, ofbeldið er dulið, til­finn­inga­legt, and­legt - og menn hrein­lega átta sig ekki. Svo eru margir afkimar, sumt er sak­laus­ara en annað. En fyrst og fremst er þetta reiði, kollek­tív yfir­gengi­leg reiði,“ Það er meðal ann­ars með þessum hætti sem Guð­mundur kýs að tjá sig á sam­fé­lags­miðlum.

Ummælin eru þó mun fleiri. 

Þann 13. maí birti hann færslu þess efnis að vinur hans hafi látið hann vita að hann væri að „ganga of nærri konum, óverð­skuldað“. Hann taldi það vera rétt ályktað og lang­aði því að „bera í bætifláka,“ eins og hann orð­aði það. „Öll þessi hvössu skrif mín tengd­ust örlögum Sölva sjón­varps­manns sem fékk ófagran dóm göt­unnar og í því fram­haldi af því skrif­aði ég sís­vona, mest til að verja borg­ara­legt siðað sam­fé­lag,“ skrif­aði hann á Facebook síðu sína og lét svo ummælin um afstöðu sína fylgja með:

„Við eigum öll að taka afstöðu með SÖLVA en ekki gegn honum, á meðan ekk­ert er sannað, málið ekki enn tekið fyrir í rétti og dæmt. Hann er frjáls maður og sak­laus þangað til hann er dæmdur. Þetta er rétt og sið­legt við­horf. Það er meira að segja rétt þótt hann síðar reyn­ist sekur.“

„Skrif og skoð­anir Guð­mundar Páls­sonar stang­ast á við grunn­gildi heim­il­is­lækna“

Í kjöl­farið sagði hann að það væri stað­reynd að konur verði fyrir órétti og „það er sífellt á þær ráð­ist og þær verða oft illa úti. Karlar eru oft hömlu­lausir af kyn­fýsn, árás­ar­hneigð og ofbeldi í garð kvenna og and­skot­inn laus í þeim efnum. Það er fárán­legt og gerir mann reiðan. Við sjálfir berum mikla ábyrgð á því að temja kyn okkar, vini okkar, syni okkar og vera harðir í horn að taka ef ein­hver ætlar að fara hegða sér eins og skepna við konu eða stúlku,“ skrif­aði hann. En hann lét ekki þar við sitja því hann skrif­aði fljót­lega ummæli sjálfur undir færsl­una til að útskýra afstöðu sína frekar:

„En það er líka eitt­hvað brenglað við það setja kyn­frelsi kvenna/manna á svo háan stall og mögu­leika til að hafa mök við hvern sem þeim sýn­ist, með sam­þykki beggja. Maður getur ekki varist þeirri hugsun að þetta hafi afleið­ingar - enda er það aug­ljós­lega hluti vand­ans. Að konan telji eðli­legt að kveikja elda karl­manns­ins og bjóða mann­inum hálfa leið eða lengra, bara til að slökkva svo eld­inn ef henni sýn­ist svo. Jú, menn geta sagt - þarna á karl­inn að hlíða og engar refjar! Já, og vissu­lega geta flestir karl­menn hamið sig - en aug­ljós­lega ekki allir. Sumir eru hrein­lega brengl­aðir á þessu sviði. Það sem ég er að hvetja til, er að konan gæti sín, kyneðlið er villi­dýrs eðli ef það fer af stað. Þetta hafa allar kyn­slóðir vitað. Því ekki að taka mark á því?“

„Alls ekki allar konur eru með á vagn­inum, það er mis­skiln­ingur, heldur aðeins von­brigða konur sem hafa orðið fyrir hnjaski ellegar treysta sér ekki í neitt sam­tal um neitt og vilja ráða öllu sjálfar - og beita valdi og stundum ósann­indum til að ná því fram“

Svona væri lengi hægt að halda áfram og Guð­mundur tekur ekki ein­ungis afstöðu til þess­arar umræðu heldur hefur hann einnig sitt að segja aðra minni­hluta­hópa eða hópa í við­kvæmri stöðu. Hér má til að mynda sjá afstöðu hans gagn­vart útlend­ingum. 

„Af hverju eru fjöl­miðlar ekki heið­ar­legir gagn­vart þeim sem tjá áhyggjur af fjölda útlend­inga í land­inu. Hver er ástæðan?“ spyr hann sig. 

„Ég get ekki treyst honum“

Kona sem Stundin ræddi við seg­ist hafa þurft að skipta um heilsu­gæslu árið 2019 meðal ann­ars vegna niðr­andi ummæla Guð­mundar í garð kvenna og vegna sam­skipta sem hún átti við hann sem not­andi þjón­ust­unnar á heilsu­gæsl­unni.

„Ég hef bæði fengið síma­tíma hjá honum og hitt á hann,“ segir konan en þegar hún sótti þjón­ustu sína í heilsu­gæslu Graf­ar­vogs var hún ekki með fastan heim­il­is­lækni og hitti því fleiri en einn lækni með sín mál. Hún hafði fundið fyrir ákveðnum óþæg­indum í sam­skiptum við hann sem hún vissi ekki á þeim tíma hver þau voru nákvæm­lega.

Eftir að hún fór að sjá hvernig Guð­mundur tjáði sig opin­ber­lega á sam­fé­lags­miðlum og í kommenta­kerfum ákvað hún að hún gæti ekki lengur leitað til hans. „Ég gat ekki lengur treyst honum, ég gat ekki treyst manni sem talar svona um konur og líka sam­kyn­hneigða. Áður en ég sá þetta upp­lifði ég alltaf að hann væri að tala við mig eins og barn og eftir að ég sá þetta hugs­aði ég: auð­vitað, hann lítur bara á mig sem barn,“ segir hún. 

Hún segir Guðmund tala á mjög niðr­andi hátt um konur og sam­kyn­hneigða opin­ber­lega og þess vegna myndi hún ekki treysta sér að leita til hans ef hún yrði fyrir ofbeldi. „Segjum að eitt­hvað myndi koma fyrir mig, ekki það að ég sé í slíkri hættu, en segjum að ég yrði fyrir heim­il­is­of­beldi eða kyn­ferð­is­of­beldi og læknir sem talar svona opin­skátt um það að þetta sé konum að kenna sjálfar og þær þurfi að passa sig og skrifar til dæmis að það að taka ein­hvern háls­taki sé bara eðli­legt í sam­skiptum elskenda, ég get ekki treyst þannig manni til að sinna mér eða dóttur minni eða frænkum mínum eða ein­hverjum öðrum. Maður sem hefur talað eins og hann hefur talað svona um sam­kyn­hneigða og konur, ég treysti ekki svona manni,“ segir hún þá. 

Hún seg­ist ekki vera sú eina sem hafi fært sig um heilsu­gæslu vegna Guð­mundar. „Ég bý við hlið­ina á heilsu­gæsl­unni í Graf­ar­vogi en vill samt ekki fara þangað. Hún hefur almennt mjög vont orð á sér. Ég hef heyrt í öðrum konum sem hafa fært sig vegna hans eða hafa óþægi­legar sögur af honum,“ segir hún. 

Læknar mega tala um allt

Stundin bauð Guðmundi að svara og segja sína hlið af mál­inu. Hann segir að læknar megi tala um allt opin­ber­lega fyrir utan sjúk­linga sína. „Þeir tala og skrifa um allt mögu­legt og það er sögu­leg hefð fyrir á meðal íslenskra lækna, Dæmin eru Vil­mundur land­læknir, Ólafur Ólafsson og nýlegra dæmi Sveinn Rúnar Hauksson. Læknar tala á opin­berum vett­vangi eins og lög­fræð­ingar og verk­fræð­ingar. Þeir tala um sjúk­dóma og fíknir, um lyf, um hjóna­bönd, um karla og konur, um heil­brigð­is­mál, mennta­mál, stríð og frið, um Íslend­inga­sögur, íslenskar hetjur og þjóð­erni. Allt mögu­legt. Og þeir hafa fullan rétt til þess eins og hver annar borg­ari,“ segir hann í sam­tali við Stundina. 

Aðspurður hvernig hann vilji svara því að kona hafi skipt um heilsu­gæslu meðal ann­ars vegna ummæla hans á opin­berum vett­vangi segir hann að ekki sé óvenju­legt að sjúk­lingar skipti um lækni, oft­ast innan sömu stöðvar vegna ýmissa mála. „Oftast vegna þess að þeir fá ekki það sem þeir vilja, þeim finnst þeir mæta mis­skiln­ingi eða er neitað um eitt­hvað til dæmis ávana­lyf eða svefn­lyf,“ segir hann. 

Hann heldur því fram að það sé eins­dæmi að mann­eskja skipti um heilsu­gæslu eða lækni vegna þess að lækn­ir­inn sé ein­hverrar skoð­unar. „Þarna finnst mér sjúk­lingur ganga of langt,“ segir hann. 

„Ég get ekki treyst þannig manni til að sinna mér eða dóttur minni eða frænkum mínum eða ein­hverjum öðrum“

Varðandi hlut­verk sitt sem læknir segir hann þessar skoð­anir hafa engin áhrif á sam­töl sín við sjúk­linga eða með­ferðir varð­andi þá. „Ég tek jafnt á móti öllum konum sem körlum, ungum sem gömlum, inn­lendum sem erlendum og ég veit ekki betur en að sjúk­ling­arnir séu sér­lega ánægðir. Ég vil taka það fram að það liggja engar kærur frammi um fram­komu mína við sjúk­linga svo það sé áréttað. Svo hér er aug­ljós­lega um árás að ræða undir belt­is­stað.“

Hann segir enn­fremur að eng­inn ástæða sé til þess að hann feli skoð­anir sínar, þær bein­ist ekki gegn neinni per­sónu heldur séu þær hug­leið­ingar sem eru opnar fyrir athuga­semdum. „En hvað með mót­bárur þá? Það má segja að maður sé svo hepp­inn að búa í landi með bæði mál­frelsi og prent­frelsi,“ segir hann. 

Guð­mundur fagnar því að umræða sé komin í gang vegna ummæla sinna.  „Við skulum aðeins vera róleg, því allir þola ekki and­stæðar skoð­anir. En það er ómet­an­legt að fá þetta fram. Athugaðu að allar þessar skoð­anir og hug­leið­ingar eru rétt­mætar í frjálsu þjóð­fé­lagi, and­staða við fóst­ur­eyð­ingar einnig og veru­leg veru­leg illska út í fem­in­isma, sem hefur margar skugga­hliðar og eyði­leggur líf margra kvenna, barna og karla.“

Læknafélagið tekur ekki afstöðu til skrifana

Stundin leit­aði við­bragða Lækna­fé­lags Íslands við slíkum skrifum Guð­mundar. Reynir Arn­gríms­son, for­maður félags­ins, sagði félagið ekki taka afstöðu er varð­aði ummæli og fram­ferði ein­stakra lækna en vís­aði í færslu félags­ins á Facebook er varðar tján­ingu lækna á sam­fé­lags­miðlum. 

Í færslu félags­ins segir að „því má aldrei gleyma að færslur á sam­fé­lags­miðlum geta haft afleið­ingar fyrir lækna jafnt og aðra, bæði jákvæðar og nei­kvæðar. Vel und­ir­búin og fag­leg þátt­taka í sam­fé­lags­miðlum getur verið árang­urs­rík aðferð til að tengj­ast kol­legum og upp­lýsa sjúk­linga. Slíkar færslur geta aukið traust almenn­ings á lækna­stétt­inni. Með sama hætti þurfa læknar að vera með­vit­aðir um það að fram­koma þeirra á sam­fé­lags­miðlum getur einnig haft nei­kvæð áhrif bæði á þá per­sónu­lega og traust almenn­ings til lækna. Það sem læknir setur á sam­fé­lags­miðla getur haft áhrif á orð­spor við­kom­andi bæði meðal sjúk­linga og kollega.“

Textinn er feng­inn úr leið­bein­ingum félags­ins um notkun félags­manna á sam­fé­lags­miðlum. Settar eru fram nokkrar leið­bein­ing­ar­reglur til félags­manna um notkun sam­fé­lags­miðla. Í reglu númer 3 er farið yfir að íhuga vel hvort skyn­sam­legt er að deila efni á sam­fé­lags­miðlum og í henni segir: „Allir njóta tján­ing­ar­frelsis og skoð­ana­frelsis en þessum mann­rétt­indum eru tak­mörk sett. Meið­yrða­lög­gjöf nær til net­sam­skipta. Þess vegna er skyn­sam­legt að forð­ast athuga­semdir um ein­stak­linga, félög eða stofn­anir sem túlka má sem til­efn­is­laus eða óstað­fest og þar með mögu­lega meið­andi.“

Þá nær ein reglan eða sú átt­unda utan um siða­reglur Lækna­fé­lags Íslands og vakin er athygli á því að læknar hugi einnig að þeim í öllum sam­skiptum sínum á sam­fé­lags­miðlum. Í meg­in­reglum siða­reglna segir að læknar skuli virða lækn­is­starfið og sýna ábyrgð í starfi og sýna vamm­leysi í líf­erni og starfi. 

Í fyrstu grein siða­reglna lækna segir að lækni sé „ósæm­andi að takast á hendur nokkra sýslu er skerðir sjálf­stæði hans sem læknis og gæta heið­urs lækna­stétt­ar­innar jafnt í lækn­is­störfum sínum sem öðrum athöfnum.“  Í sömu grein kemur fram að „Læknir skal rækja starf sitt af vand­virkni og sam­visku­semi án til­lits til eigin hags­muna, per­sónu­legra skoð­ana, stjórn­mála, þjóð­ernis, trú­ar­bragða, kyn­þátta, kyn­ferðis, kyn­hneigðar eða ann­arra utan­að­kom­andi áhrifa.“ Á þessum grund­velli og öðrum úrskurðar siða­nefnd Lækna­fé­lags Íslands um brot á siða­reglum lækna. Nýlega hefur læknir verið áminntur af nefnd­inni fyrir ummæli sín á sam­fé­lags­miðlum og hefur Stundin óskað eftir þeim úrskurð frá félag­inu. 

„Það sem ég er að hvetja til, er að konan gæti sín, kyneðlið er villi­dýrs eðli ef það fer af stað“

Í siða­regl­unum má finna kafla er varðar aug­lýs­ingar lækna, vef­síður og fjöl­miðla. Í 17. grein siða­reglna segir: „Lækni hlýðir að birta nýj­ungar í fræði­grein sinni með mik­illi gát, hann skal gæta fyllstu var­kárni í ummælum um fag­leg mál og hann skal íhuga ábyrgð sína í því efni, hvort sem hann ræðir við ein­stak­ling eða á opin­berum vett­vangi. Enn fremur er komið inn á það í 19. Grein siða­reglna að læknir skuli forð­ast ummæli sem geti skapað óþarfan eða órétt­læt­an­legan ótta við sjúk­dóma eða órök­studda van­trú á lækn­is­starfi.

Í því sam­hengi má líta til ummæla Guð­mundar um getn­að­ar­varnir: „Ung kona í blóma lífs­ins, segum 18-23 ára ákveður að bind­ast engum manni (ennþá) heldur fer hún út á lífið á eigin spítur, kaupir eða leigir íbúð og ferð að vinna eða í nám. Varla er neitt óeðli­legt við það? Reynslan sýnir að þessi sól­ó­ferð kon­unnar tekur kannski 10 ár, jafn­vel 15 af dýr­mætasta tíma hennar. Á þeim tíma er hún hugs­an­lega með hjálp pill­unar í tengslum við nokkra menn en ákveður ekki með fram­hald, fjöl­skyldu­stofnun eða börn, sem gefur eins og flestir vita mesta gæfu og ekk­ert getur komið í stað­inn fyrir, hvorki fyrir ein­stak­ling­inn eða sam­fé­lagið.“

Í ann­ari færslu talar hann um að kyn­fræðsla dags­ins í dag sé í röngum höndum. Fyrir það fyrsta kynnir hún börn fyrir „alls konar per­ver­sjónir“ og gefi „gul­grænt“ ljós á kyn­líf fyrir hjóna­band sem skaði konur mest. Í færsl­unni kemur hann inn á pill­una og segir hana ekki hafa auka­verk­anir en kyn­líf hafi þær. „Betra er að fá að þroskast í friði, ein­beita sér að öðru og bíða.“ í þessum tveimur færslum gefur Guð­mundur sig út fyrir að vera á móti getn­að­ar­varnapill­unni og grefur þannig undan notkun hennar. 

Hverjum sem er er frjálst að leggja fram kvörtun eða ábend­ingu til siða­nefnd­ar­innar svo hún geti tekið afstöðu til hvers til­viks fyrir sig en að öðru leyti hefur félagið ekki frum­kvæði að því að meta ummæli eða fram­ferði lækna á opin­berum vett­vangi sem gætu á einn eða annan hátt varðað siða­reglur félags­ins. 

Samtök Norrænna heimilislækna fordæma skrifin

Jóhann Ágúst Sig­urðs­son, for­maður Samtaka Norrænna heim­il­is­lækna eða Nordic Federation of General Practice, segir í sam­tali við Stundina að „skrif og skoð­anir Guð­mundar Páls­sonar stang­ast á við grunn­gildi heim­il­is­lækna“. 

Í grunn­gildum heim­il­is­lækna segir Jóhann að tekið sé fram að „til þess að varð­veita heilsu er mik­il­vægt að hver og einn njóti rétt­lætis og virð­ingar. Þar ber sér­stak­lega að taka til­lit til ójafn­vægis eða órétt­lætis sem skap­ast geti vegna kyn­þáttar/hör­unds­litar, kyns, kyn­hegð­unar, póli­tískra skoð­ana, atvinnu­leysis, trú­ar­bragða, og svo fram­vegis. Í fyrr­nefndum skrifum Guð­mundar er vegið að þessum þáttum,“ segir Jóhann.

„Að konan telji eðli­legt að kveikja elda karl­manns­ins og bjóða mann­inum hálfa leið eða lengra, bara til að slökkva svo eld­inn ef henni sýn­ist svo“

Þá segir hann að í sömu grein um grunn­gildin sé bent á að heim­il­is­læknar telji það skyldu sína að tala um eða segja frá ef þeir verði varir við slíkt mis­rétti í starfi sínu og því telji hann sig vera í þeirri afstöðu að vekja athygli á þessu vanda­máli. 

Jóhann segir að Guð­mundur hafi tján­ing­ar­frelsi eins og aðrir en það sé alltaf háð þeirri stöðu sem hver og einn sé í. „Þar eð skoð­unin teng­ist oft ekki aðeins per­són­unni heldur einnig stöðu/fag­stétt við­kom­andi. Þannig getur til dæmis stjórn­mála­maður í valda­stöðu ekki tjáð sig um hvað sem er sem per­sóna, eða hegðað sér hvernig sem er sem per­sóna, sam­an­ber Trump. Læknir er einnig í svip­aðri stöðu þar sem fólk getur verið háð honum eða henni vegna heilsu sinnar. Fólk er háð því að læknir sinni vanda­málum þeirra óháð þeim þáttum sem ég nefndi hér að ofan. Umræða læknis á Facebook verður þannig bæði tengd per­són­unni og fag­inu sem slíku.“

Guð­mundur seg­ist spyrja sig hvort afstaða for­manns Samtaka Norrænna heim­il­is­lækna sé per­sónu­lega gegn honum. „En ég veit að hann er á önd­verðri póli­tískri skoðun,“ segir hann um Jóhann og heldur síðan áfram: „Ekki skil ég þetta en veit að hann Jóhann vinur minn er afar mikið í póli­tíska rétt­trún­að­inum. Það er ekki gott að blanda því saman við lækn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár