Samþykktu 690 íbúða byggð í Skerjafirði

Stefnt að blandaðri byggð með hagkvæmu húsnæði og stúdenta­görðum auk verslunar og þjónustu.

Fyrsti áfangi samþykktur
Fyrsti áfangi sam­þykktur Um er að ræða fyrsta áfanga upp­bygg­ing­ar­innar en stefnt er að 1.200 íbúða upp­bygg­ingu á svæð­inu.

Deili­skipulag fyrir fyrsta áfanga nýrrar byggðar í Skerja­firði var samþykkt í borgar­stjórn síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða blandaða byggð með 690 íbúðum, leik­skólum og grunn­skólum auk verslunar og þjónustu.

Íbúðirnar verða af ýmsum stærðum og hluti þeirra fellur undir verkefnið Hagkvæmt húsnæði, sem miðar að uppbyggingu fyrir ungt fólk og kaupendur fyrstu íbúða. Þá byggir Bjarg íbúða­félag íbúðir fyrir sína félags­menn og Félags­stofnun stúdenta einnig stúdenta­garða.

Deili­skipulags­tillagan var samþykkt með atkvæðum flokkanna sem mynda meirihluta í borgar­stjórn gegn atkvæðum fulltrúa minnhlutans, en borgar­fulltrúi Sósíal­ista og Katrín Atla­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokks, sátu hjá. Í bókun meirihlutans var uppbyggingunni fagnað en fulltrúar Sjálfstæðis­flokks töldu ákvörðunina ótímabæra vegna meðal annars álitamála er varða samgöngur og álag á umferð auk umhverfis­þátta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár